Skip to main content
Aldan

Afgerandi niðurstaða í atkvæðagreiðslu um nýjan samning við ríkið

By October 30, 2015No Comments

Ríkisstarfsmenn í 15 aðildarfélögum SGS hafa samþykkt kjarasamninginn sem undirritaður var 7. október síðastliðinn í sameiginlegri rafrænni atkvæðagreiðslu. Niðurstaðan var mjög afgerandi – já sögðu 81,8% en nei sögðu 16,3% (auðir seðlar 1,9%).

Ríkisstarfsmenn í 15 aðildarfélögum SGS hafa samþykkt kjarasamninginn sem undirritaður var 7. október síðastliðinn í sameiginlegri rafrænni atkvæðagreiðslu. Niðurstaðan var mjög afgerandi – já sögðu 81,8% en nei sögðu 16,3% (auðir seðlar 1,9%). Alls voru 1.012 félagar á kjörskrá og greiddu 258 þeirra atkvæði (25,5% kjörsókn).

Starfsgreinsambandið undirritaði kjarasamninginn í umboði eftirtalinna félaga: AFL – starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Stéttarfélagið Samstaða, Stéttarfélag Vesturlands, Verkalýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verkalýðsfélag Akraness og Framsýn stéttarfélag.

Samningurinn er á svipuðum nótum og samið var um á almennum markaði í vor og gildir hann frá 1. maí síðastliðnum.
Hækkun frá 1. maí er 25.000 krónur.
Þann 1. júní árið 2016 hækka laun um 5,5%, að lágmarki 15.000 krónur,auk breytinga á launatöflu.
Ári síðar, eða 1. júní 2017,  hækka laun um 4,5%
og 1. júní 2018 hækka laun um 3%.

Samningurinn gildir til 31. mars árið 2019 og kemur þá til sérstök eingreiðsla 1. febrúar 2019 uppá 45.000 krónur fyrir starfsfólk í fullu starfi og hlutfallslega fyrir starfsfólk í hlutastarfi. 
Lágmarkslaun eru hækkuð til samræmis við það sem samið var um á hinum almenna vinnumarkaði og verða 300.000 krónur frá 1. júní 2018 fyrir starfsmenn 18 ára og eldri sem starfað hafa fjóra mánuði samfellt hjá sömu stofnun.
Framlag í þróunar- og símenntunarsjóði verður hækkað í 0,82% auk þess sem aukið framlag verður sett í stofnanasamninga samkvæmt sérstakri bókun.

Samninginn í heild sinni má nálgast hér.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com