Skip to main content
AldanVMF

Afnám vörugjalda – verðlækkanir ekki í samræmi við væntingar

By May 8, 2015No Comments

Samkvæmt könnunum verðlagseftirlits ASÍ eru verðlækkanir á heimilistækjum vegna afnáms vörugjalda og lækkunar virðisaukaskatts mun minni en gera mátti ráð fyrir. Áætla má að verð allra þeirra heimilistækja sem skoðuð voru í könnuninn hefði átt að lækka um meira en 19% en sú er ekki raunin.

Samkvæmt könnunum verðlagseftirlits ASÍ eru verðlækkanir á heimilistækjum vegna afnáms vörugjalda og lækkunar virðisaukaskatts mun minni en gera mátti ráð fyrir. Áætla má að verð allra þeirra heimilistækja sem skoðuð voru í könnuninn hefði átt að lækka um meira en 19% en sú er ekki raunin. Reyndar lækkar verð í 41% tilvika um meira en 20% en það vekur athygli að í 20% tilvika hækkaði verð á heimilistækjum eða það stóð í stað þrátt fyrir virðisaukaskattslækkun úr 25,5% í 24% og afnám vörugjalda um 20%-25%.

Verðlagseftirlitið áætlar að vörur eins og sjónvörp, útvörp og myndspilarar sem áður báru 25% vörugjald ættu að lækka um 22,2%, með vsk. lækkuninni. Þvottavélar, kæliskápar, uppþvottavélar og helluborð sem áður báru 20% vörugjald og hefðu átt að lækka um 19,2%, með vsk. lækkuninni.
Athygli vekur að engin vara sem skoðuð var í versluninni Rafha lækkaði um 19% eða meira og innan við helmingur þeirra vara sem skoðaðar voru í Max raftækjum og Eirvík. Verslunin Smith og Norland lækkaði verð um meira en 20% hlutfallslega oftast eða í tæplega 80% tilfella.

 

Á heimasíðu ASÍ má sjá meira um niðurstöðu þessarar verðkönnunar.
 

 

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com