Skip to main content
AldanVMF

Áhrif tollalækkana á verð á fatnaði og skóm

By December 9, 2015No Comments

Um áramótin verða tollar afnumdir á fatnaði og skóm. Um er að ræða ýmiskonar fatnað, t.d. notaðan fatnað, skó, höfuð- og leðurfatnað, loðskinn, fatnað úr plasti og gúmmíi, sem og fylgihluti þeirra, hnappa, tölur og rennilása.

Um áramótin verða tollar afnumdir á fatnaði og skóm. Þetta eru 324 tollskrárnúmer. Um er að ræða ýmiskonar fatnað, t.d. notaðan fatnað, skó, höfuð- og leðurfatnað, loðskinn, fatnað úr plasti og gúmmíi, sem og fylgihluti þeirra,  hnappa, tölur og rennilása.

Afnám tolla af fatnaði og skóm á að skila 13% meðallækkun verðs til neytenda á þeim vörum sem áður báru tollinn. En þetta er ekki svona einfalt. Þegar skoðað er hlutfall þeirra vara í flokknum sem bera toll kemur í ljós að það eru aðeins 60% þeirra vara sem fluttar eru til landsins sem bera toll. Miðað við það hlutfall ætti afnámið að skila 7,8% lækkun á liðnum fatnaður og skór í vísitölu neysluverðs.

Þessar breytingar á tollum eru til hagsbóta fyrir neytendur. Í töflunni hér að neðan má sjá nokkur dæmi um 13% lækkun á hinum ýmsum fatnaði.

   

Vara fyrir lækkun eftir lækkun lækkun í kr.
2 pör af sokkum í pakka 1.990 1.731 259
Náttgalli 4.570 3.976 594
Brjóstahaldari 8.900 7.743 1.157
Peysa 13.990 12.171 1.819
Barnaúlpa 14.624 12.723 1.901
Gallabuxur 16.990 14.781 2.209
Kjóll 35.700 31.059 4.641
Leðurstígvél 46.995 40.886 6.109
Úlpa fyrir fullorðinn 69.500 60.465 9.035

Verðlagseftirlitið vonast til þess að afnám tollanna á fatnað og skóm skili sér sem fyrst til neytenda með lækkun á vöruverði. Mun verðlagseftirlit Alþýðusambandsins fylgjast vel með breytingunum og hvetur neytendur til hins sama.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com