Skip to main content
AldanStéttarfélag.isVMF

Alþjóðlegir skattar og nei við einkarekstri og undirboðum

By June 25, 2021July 8th, 2021No Comments

Pistill forseta ASÍ
Krumlur kófsins eru á undanhaldi og senn hefst uppgjörstíminn um heim allan, hvað tókst vel í sóttvörum og vinnumarkaðsaðgerðum. Það er engin tilviljun að skattkerfið er sett undir smásjána af þessu tilefni, enda hafa flest stjórnvöld opnað hirslurnar til að tryggja afkomu fólks. Það verður æpandi ósanngjarnt, sérstaklega á þessum tímum, að mörg stórfyrirtæki greiða sama sem engan skatt og það er sérstök fræðigrein að koma sér hjá skattgreiðslum um allan heim.

Nú eru því hafnar löngu tímabærar samningaviðræður um alþjóðlegan fyrirtækjaskatt og verður tekist á um málið á vettvangi OECD og G20 ríkjanna um þessi mánaðamót. Annars vegar er rætt um skattlagningu alþjóðlegra fyrirtækja sem starfa á netinu og er tillagan á þá leið að ríki geti skattlagt hagnað sem verður til innan þeirra lögsögu. Hins vegar er rætt um alþjóðlegan lágmarksskatt á fyrirtæki og hefur hlutfallið 15% verið nefnt í því samhengi. Alþjóða verkalýðshreyfingin tekur undir þetta en vill hækka hlutfallið í a.m.k. 25% enda þarf að sækja fjármagn til þeirra sem eru aflögufærir. Það er bæði lykilatriði til að takast á við afleiðingar heimsfaraldursins og til að fjármagna nauðsynlegar aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Kófið hefur kennt okkur það að enginn getur verið undanskilinn stóra samhenginu – enginn getur stimplað sig út úr samfélaginu fyrir eigin gróða.

Það eru stórtíðindi þegar leiðtogar stærstu ríkja heims reisa kröfur gegn skattaundanskotum og það er til marks um viðsnúning í heimsstjórnmálunum. Frá óheftri markaðshyggju til einhvers konar vísis að samtryggingu. Hér á landi er hins vegar þrennt að gerast sem gengur í berhögg við þessa þróun.

Ríkið gaf fjármagnseigendum og þeim sem gátu keypt sér hlut í Íslandsbanka nokkra milljarða úr almannasjóðum við söluna á bankanum. Ekki almenningi, heldur þeim sem eru aflögufærir og bröskurum, þar með talið alþjóðlegum fjárfestingasjóðum. Við þessu hafði verkalýðshreyfingin varað.

Einkavæðing í öldrunarþjónustu er hafin af fullum krafti og ljóst að fyrirtæki sem taka að sér einkarekstur ætla ekki að gera það af hugsjóninni einni saman, það sannaðist þegar uppsagnirnar hófust: Það á að „lækka starfsmannakostnað“ sem þýðir á alþýðumáli að lækka laun. Ríkið greiðir svo brúsann, þar með talið arðinn til hluthafa fyrir markaðsvæðingu á lífi og heilsu gamla fólksins.

Play fór í loftið fljúgandi á undirboðum á vinnumarkaði, gerandi samning um kjör flugfreyja og -þjóna án aðkomu flugfreyja- og þjóna og kynnir sig fyrir fjárfestum með yfirlýsingu um að það fyrirtæki geti umfram önnur „haldið starfsmannakostnaði niðri“. Þeirri baráttu er langt í frá lokið.

Baráttunni við heimsfaraldurinn er hins vegar að ljúka, a.m.k. í bili, og það voru gleðifréttir í dag þegar tilkynnt var að öllum takmörkunum yrði aflétt innanlands. Það er ávísun á gott sumar en við uppgjör þessa tímabils og við skrefin framundan er ljóst að baráttunni fyrir sanngjörnum launum og réttlátri dreifingu auðsins er hvergi nærri lokið. Við munum áfram standa vaktina!

Gleðilegt sumar kæru lesendur – næsti föstudagspistill fer í loftið í ágúst.

Góða helgi,
Drífa

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com