Skip to main content
AldanVMF

Alþýðusambandið skorar á stjórnvöld að stofna samfélagsbanka

By February 7, 2019No Comments

Miðstjórn ASÍ skorar á stjórnvöld að stofna óhagnaðardrifinn samfélagsbanka enda er almenningur langþreyttur á skorti á samkeppni á fjármálamarkaði, miklum kostnaði og háu vaxtastigi hér á landi.

Miðstjórn ASÍ skorar á stjórnvöld að stofna óhagnaðardrifinn samfélagsbanka enda er almenningur langþreyttur á skorti á samkeppni á fjármálamarkaði, miklum kostnaði og háu vaxtastigi hér á landi.
Með eignarhlut sínum í ríkisbönkum eru stjórnvöld í kjörstöðu til að stofna óhagnaðardrifinn samfélagsbanka, þar sem hagsmunir neytenda verði hafðir að leiðarljósi og skilið sé á milli áhættusækins bankareksturs og almennrar inn- og útlánastarfsemi.

Miðstjórn ASÍ telur að stofnun slíks samfélagsbanka geti verið mikilvæg leið til að auka heilbrigði fjármálamarkaðar og færa vaxtastig og kostnað nær því sem þekkist í nágrannalöndum.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com