Skip to main content
Aldan

Ályktun formannafundar SGS um vaxtamál

By March 2, 2015No Comments

Formannafundur SGS tekur undir gagnrýni um mikinn og ólíðandi vaxtamun viðskiptabankanna á Íslandi og skorar á ríkisstjórnina, Alþingi og fjármálakerfið í heild sinni að taka höndum saman um að skapa hér eðlilegt og sanngjarnt lánaumhverfi.

Svohljóðandi ályktun var samþykkt á formannafundi SGS föstudaginn 27. febrúar 2015:

Formannafundur SGS tekur undir gagnrýni um mikinn og ólíðandi vaxtamun viðskiptabankanna á Íslandi.
Það liggur fyrir að mörg heimili og fyrirtæki hérlendis berjast í bökkum vegna þeirra okurvaxta sem þeim standa til boða.

Það liggur líka fyrir að sá vaxtamunur sem hér ríkir þekkist varla í þeim löndum sem við viljum helst bera okkur saman við. Þessi mikli vaxtamunur og okurvextir leggjast þungt á skuldsetta alþýðu þessa lands.

Bankakerfið á Íslandi olli íslensku samfélagi gríðarlegum skaða og það er algerlega ótækt  að bönkunum, sem yfirtóku lánasöfn almennings og fyrirtækja með miklum afslætti eftir hrun, skuli í skjóli fákeppninnar leyfast að níðast áfram á almenningi með okurvöxtum og gjaldskrárhækkunum.

Fundurinn fagnar því að forsætisráðherra skuli standa með launafólki í þessu mikla hagsmunamáli  sem vaxtakjör fjármálakerfisins er, ásamt því að taka undir kröfur SGS vegna komandi kjarasamninga,  enda eru hér um brýnustu hagsmunamál alþýðunnar að ræða.

Fundurinn skorar á ríkisstjórnina, Alþingi og fjármálakerfið í heild sinni að taka höndum saman um að skapa hér eðlilegt og sanngjarnt lánaumhverfi þar sem vextir og önnur kjör fjármálakerfisins verði eins og í siðmenntuðum löndum.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com