Skip to main content
AldanVMF

Ályktun miðstjórnar ASÍ um fjármálaáætlun fyrir árin 2018-2022

By April 21, 2017No Comments

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands mótmælir harðlega nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem felur í sér alvarlega aðför að velferðarkerfinu.

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands mótmælir harðlega nýrri fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem felur í sér alvarlega aðför að velferðarkerfinu. Þar á meðal má nefna:

  • Skerða á réttindi atvinnuleitenda og stytta á bótatímabil atvinnuleysistrygginga úr 30 mánuðum í 24 mánuði. Þetta er alvarleg aðför að grundvallar réttindum launafólks.
     
  • Þrátt fyrir ítrekuð loforð um aukin framlög til heilbrigðisþjónustunnar er rekstur hennar áfram vanfjármagnaður.
     
  • ASÍ tekur undir mikilvægi þess að setja þak á greiðsluþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni en ítrekar mótmæli sín gegn því að sú breyting sé fjármögnuð að stærstum hluta með hækkun á kostnaði hjá megin þorra notenda og krefst þess að staðið verði við 50 þúsund króna árlegt kostnaðarþak.
     
  • Áformuð fjölgun hjúkrunarrýma fram til ársins 2022 nemur einungis rúmlega helmingunum af áætlaðri viðbótarþörf fyrir ný hjúkrunarrými til ársins 2020.
     
  • Þrátt fyrir stöðuga fækkun barneigna undanfarin ár eru stuðningskerfi við ungt fólk ekki efld.
     
  • Barna- og húsnæðisbótakerfin sem eru mikilvæg tekjujöfnunartæki eru áfram veikt og fjölskyldum sem fá stuðning úr þessum kerfum mun að óbreyttu halda áfram að fækka.
     
  • ASÍ fagnar áformaðri hækkun á hámarksgreiðslum til foreldra úr Fæðingarorlofssjóði í 600 þúsund krónur á mánuði í áföngum fram til ársins 2020 en telur jafnframt nauðsynlegt að tekjur upp að 300.000 krónum á mánuði skerðist ekki og að fæðingarorlof verði lengt úr 9 mánuðum í 12 í áföngum.
     
  • Vegna ástandsins á húsnæðismarkaði er nauðsynlegt að auka stofnframlög til byggingar hagkvæmra leiguíbúða í almenna íbúðakerfinu úr 600 í 1.000 á ári næstu árin.
     
  • Ekki stendur til að gera löngu tímabærar breytingar á réttindum örorkulífeyrisþega í almannatryggingakerfinu til samræmis við þær breytingar sem gerðar hafa verið á réttindum ellilífeyrisþega, fyrr en á árinu 2019. Á meðan búa örorkulífeyrisþegar áfram við flókin, ógagnsæ réttindi almannatrygginga með krónu á móti krónu skerðingum á þann hóp sem verst stendur.
     
Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com