Einungis 3% landsmanna eru hlynnt því að nýting auðlinda til orkuframleiðslu sé að miklu eða öllu leyti í höndum einkafyrirtækja. Þetta kemur fram í nýrri þjóðmálakönnun Alþýðusambands Íslands (ASÍ).
Spurt var: Hvort telur þú að nýting auðlinda til orkuframleiðslu (vatns, jarðhita og vinds) eigi að vera í höndum ríkisfyrirtækja eða einkafyrirtækja?
Alls kváðust 85% þeirrar skoðunar að nýting ætti alfarið eða að miklu leyti að vera í höndum ríkisfyrirtækja. Hlutlaus lýstu sig 12%.
Ekki reyndist marktækur munur á milli kynja og eftir búsetu. Mestur stuðningur við að einkafyrirtæki hefðu þessa nýtingu með höndum reyndist í hópi þeirra með hæstu fjölskyldutekjur.
Þá töldu 9% í yngsta hópnum, 18 til 29 ára, að þessu væri betur komið að miklu leyti í höndum einkafyrirtækja.
Hins vegar taldi enginn í þessum aldurshópi að nýtingu auðlinda væri alfarið best komið í höndum einkafyrirtækja.
Í þessum sama hópi var hlutfall óákveðinna einnig hæst, 25%.
Með tilliti til stuðnings við stjórnmálaflokka reyndust 27% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins ekki hafa afgerandi skoðun á málinu og þar var stuðningur við einkaframtakið mestur. Alls töldu 9% stuðningsmanna flokksins að best færi á að nýting auðlinda til orkuframleiðslu væru að miklu leyti í höndum einkafyrirtækja en einungis 2% töldu að ríkið ætti ekki að koma þar nærri.
Hér má sjá nánari greiningu á svörum við þessari spurningu.
Gallup framkvæmdi könnunina 12.-23. september 2024.
Þetta var netkönnun sem náði til 1.722 manns af öllu landinu, 18 ára og eldri, sem handahófsvaldir voru úr Viðhorfahópi Gallup.
Stærð úrtaks og svörun:
Úrtak: 1,722
Svara ekki: 851
Fjöldi svarenda: 871
Þátttaka: 50,6%