Skip to main content
AldanVMF

ASÍ krefst þess að ákvörðun kjararáðs verði dregin til baka

By November 2, 2016No Comments

Samninganefnd Alþýðusambands Íslands (ASÍ) fundaði í gær og fjallaði þar um úrskurð kjararáðs og þær grafalvarlegu afleiðingar sem hann mun hafa á stöðugleika á vinnumarkaði. Nefndin sendi frá sér ályktun um málið.

Undanfarið ár hefur verið unnið að því að skapa sátt á vinnumarkaði og leggja þannig grunn að efnahagslegum og félagslegum stöðugleika. Flestir stjórnmálaleiðtogar á Alþingi Íslendinga hafa tekið undir þá ábyrgu sýn sem felst í breyttum vinnubrögðum við gerð kjarasamninga og ítrekuðu hana m.a. í stjórnmálaumræðum á nýafstöðnu þingi ASÍ.

Úrskurður kjararáðs sem kynntur var í gær gengur þvert á þessa orðræðu og brýtur alvarlega gegn öllum skynsemisrökum. Það er ekkert réttlæti í því að laun þingmanna, ráðherra og æðstu embættismanna hækki um allt að 75% á þremur árum á sama tíma og almenn laun í landinu hafa hækkað um 29%. Ef horft er til úrskurða kjararáðs á þessu ári er einsýnt að ráðið ætlar sér að koma af stað höfrungahlaupi af áður óþekktri stærðargráðu.

Samninganefnd ASÍ áréttar að kjararáð starfar á ábyrgð Alþingis og ríkisstjórnar. Ef nýkjörið Alþingi vill halda áfram samtali um stöðugleika og sátt á vinnumarkaði verður þingið að koma saman nú þegar og draga þessar hækkanir til baka. Að öðrum kosti verður óstöðugleiki og upplausn á vinnumarkaði í boði Alþingis.

Sjá nánar meðfylgjandi minnisblað.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com