Skip to main content
Stéttarfélag.is

ASÍ og BSRB halda opinn staðar- og netfund um almenna íbúðakerfið

By April 27, 2026No Comments

ASÍ og BSRB halda opinn fund (staðar- og netfund)  um almenna íbúðakerfið og ábyrgð sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Fundurinn fer fram þriðjudaginn 28. apríl kl. 9.00 – 10.30 í Eddu og í streymi. Á fundinum verður m.a. kynnt ný greining samtakanna um félagslegt húsnæði og þróun almenna íbúðakerfisins.

Verkalýðshreyfingin hefur í gegnum tíðina lagt ríka áherslu á húsnæðisöryggi launafólks og verið virkur þátttakandi í uppbyggingu og umræðu um húsnæðismál. Samtökin eiga húsnæðissjálfseignarstofnunina Bjarg íbúðafélag fyrir félaga í aðildarfélögum sínum. Bjarg er burðarás í almenna íbúðakerfinu og hefur frá 2016 byggt yfir 1.000 íbúðir fyrir tekjulágt launafólk.

Hvar á láglaunafólk að búaÁbyr sveitarfélaganna í húsnæðisuppbyggingu

Opinn fundur ASÍ og BSRB í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga

Þriðjudaginn 28. apríl kl. 9.00-10.30 í Eddu, Arnfinnsgötu 5

Boðið verður upp á morgunhressingu frá kl. 8.30

Streymt verður frá fundinum hér

Dagskrá:

8:30​ Húsið opnar

9:00​ Opnunarávarp – Finnbjörn A Hermannsson, forseti ASÍ

9:05​ Saga og tilurð almenna íbúðakerfisins og Bjargs íbúðafélags – Myndband

9:10​ Kynning á nýrri greiningu um félagslegt húsnæði og almenna íbúðakerfið

Róbert Farestveit hagfræðingur ASÍ og Jana Víglundsdóttir hagfræðingur BSRB

9:30​ Saga íbúa í Bjargi – Myndband

9:35 ​Húsnæðisstefnu stjórnvalda og hlutverk sveitarfélaga

Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, aðstoðarforstjóri HMS 

9:50 ​Saga íbúa í Bjargi – Myndband

9:55 ​Pallborðsumræður

Dagur B Eggertsson, formaður aðgerðahóps stjórnvalda í húsnæðismálum

Jón Björn Hákonarson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga 

Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og stjórnarmaður í Bjargi

Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags

10:30 ​Fundarslit

Fundarstjóri er Brynja Þorgeirsdóttir

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com