Skip to main content
AldanVMF

ASÍ styður baráttuna gegn spilakössum

By May 15, 2020No Comments

Könnun um spilahegðun Íslendinga sem samtök áhugafólks um spilafíkn kynnti í dag staðfestir það sem lengi hefur verið rætt um, þ.e. að það er tiltölulega lítill hópur fólks sem stendur undir ótrúlegum fjárhæðum sem fara í spilakassana.

Könnun um spilahegðun Íslendinga sem samtök áhugafólks um spilafíkn kynnti í dag staðfestir það sem lengi hefur verið rætt um, þ.e. að það er tiltölulega lítill hópur fólks sem stendur undir ótrúlegum fjárhæðum sem fara í spilakassana. Þeir eru í raun keyrðir áfram af þeim sem eiga við spilafíkn að stríða með öllum þeim vanda sem fylgir, félagslega og fjárhagslega. Það er því samfélagslega mikilvægt að taka á málinu og samkvæmt fyrrnefndri skoðanakönnun er þjóðin sammála því.

Spilafíkn er erfiður sjúkdómur sem kemur hart niður á lífsgæðum þeirra sem haldnir eru fíkninni og fjölskyldum þeirra. Alþýðusamband Íslands stendur með Samtökum áhugafólks um spilafíkn í baráttu þeirra gegn spilakössunum.

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com