Skip to main content
Aldan

ASÍ undrast fullyrðingar sviðsstjóra hjá RSK

By November 11, 2015No Comments

Á síðustu vikum og mánuðum hafa Alþýðusambandinu og aðildarsamtökum þess borist upplýsingar um vaxandi fjölda erlendra fyrirtækja sem eru með tímabundna starfsemi hér á landi, einkum í tengslum við mannvirkjagerð en einnig aðra atvinnustarfsemi.

Á síðustu vikum og mánuðum hafa Alþýðusambandinu og aðildarsamtökum þess borist upplýsingar um vaxandi fjölda erlendra fyrirtækja sem eru með tímabundna starfsemi hér á landi, einkum í tengslum við mannvirkjagerð en einnig aðra atvinnustarfsemi. Í mörgum tilfellum er um að ræða undirverktaka hjá íslenskum fyrirtækjum eða starfsmannaleigur. Komið hefur í ljós að þessari starfsemi fylgja vandamál er tengjast undirboðum á vinnumarkaði og jafnframt er það staðreynd að erlent launafólk sem starfar hjá þessum fyrirtækjum er berskjaldað fyrir svindli, enda eðli málsins skv. með takmarkaða þekkingu á þeim réttindum sem því eru tryggð með kjarasamningum og lögum á íslenskum vinnumarkaði. Þá hefur komið fram að þessi fyrirtæki hafa ekki greitt skatta og skyldur til íslensks samfélags. Á þessar staðreyndir hefur formaður Framsýnar stéttarfélags og fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar bent, varað við afleiðingunum og hvatt til þess að við þeim verði brugðist af festu.

Í hádegisfréttum RÚV laugardaginn 7. nóvember var haft eftir sviðsstjóra fyrirtækjaskrár RSK að ekkert bendi til þess að íslensk fyrirtæki reyni að komast hjá því að greiða skatta og gjöld með því að útvista verkefnum til erlendra fyrirtækja sem veita þjónustu tímabundið hér á landi. Jafnframt mátti skilja á sviðsstjóranum að lítið sé um erlend fyrirtæki með tímabundna starfsemi hér á landi.
Alþýðusambandið er ósammála því sem fram kom í framangreindri frétt. Staðreyndirnar tala sínu máli. Jafnframt bendir ASÍ á mikilvægi þess að embætti RSK skoði málið nánar og taki ábendingar þeirra aðila alvarlega sem næst vinnumarkaðnum standa og búa yfir mikilvægum upplýsingum í þessum efnum.
 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com