Skip to main content
VMF

ASÍ-UNG ályktar um áherslur ungs fólks í aðdraganda kjaraviðræðna

By September 19, 2018No Comments

Á þingi ASÍ-UNG sem haldið var 14.september sl. mátti greina mikinn samhug og baráttuvilja hjá ungu fólki innan verkalýðshreyfingarinnar. Málþing um hlutverk stéttarfélaga og þær áherslur sem ungt fólk vill sjá í komandi kjarasamningum bar einna hæst á þinginu.

Fimmta þing ASÍ-UNG var haldið föstudaginn 14. september. ASÍ-UNG eru samtök ungs fólks á aldrinum 16-35 ára innan verkalýðshreyfingarinnar, sem sér til þess að hagsmunamál ungs fólks á vinnumarkaði séu ávallt á dagskrá Alþýðusambandsins.

Á þinginu mátti greina mikinn samhug og baráttuvilja hjá ungu fólki innan verkalýðshreyfingarinnar. Málþing um hlutverk stéttarfélaga og þær áherslur sem ungt fólk vill sjá í komandi kjarasamningum bar einna hæst á þinginu.

Meðfylgjandi ályktun var samþykkt í lok þingsins en hún sýnir ágætlega hvar áherslur ungs fólks innan verkalýðshreyfingarinnar liggja í komandi kjaraviðræðum.

  • Þing ASÍ-UNG ályktar um nauðsyn þess að marka skýra stefnu í húsnæðismálum til þess að tryggja ungu fólki húsnæði við hæfi. ASÍ-UNG telur það vera grundvallaratriði að allir hafi möguleika á öruggu búsetuformi sem hentar á viðráðanlegum kjörum.
     
  • ASÍ-UNG krefst þess að persónuafsláttur verði hækkaður þannig að lágmarkslaun verði skattlaus.
     
  • ASÍ-UNG krefst þess einnig að aldurstengd launamismunun verði afnumin með öllu enda er hún klárt brot á mannréttindum. Jafnframt gerir ASÍ-UNG kröfu um að ungt fólk eigi sæti við samningaborðið til þess að tryggja hagsmuni þess.
     
  • ASÍ-UNG leggur ríka áherslu á að vinnueftirlit verði aukið og viðurlög vegna brota á vinnustað verði hert.
     
  • Þing ASÍ-UNG leggur áherslu á jafnvægi milli einkalífs og vinnu. Brúa þarf bil milli fæðingarorlofs og leikskóla og auka orlofsrétt vegna vetrarfría í skólum.

 

Eins og fyrr segir var málþing um hlutverk stéttarfélaga og þær áherslur sem ungt fólk vill sjá í komandi kjarasamningum einn af hápunktum þingsins. Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambandsins, Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, fluttu erindi og tóku svo þátt í pallborðsumræðum ásamt tveimur stjórnarmönnum ASÍ-UNG, þeim Eiríki Þór Theódórssyni og Hafdísi Ernu Ásbjarnardóttur. Miklar umræður sköpuðust varðandi stöðu ungs fólks á vinnumarkaði og er ljóst að fulltrúum finnst að víða megi gera betur til að styrkja stöðu þessa hóps.

Ný stjórn var kosin til starfa þar sem lögð var áhersla á jafna skiptingu út frá kyni, búsetu og félögum. Nýja stjórn ASÍ-UNG skipa:

Aðalstjórn:
Alma Pálmadóttir, Efling
Gundega Jaunlina, Hlíf
Karen Birna Ómarsdóttir, Aldan stéttarfélag
Margret Júlía Óladóttir, FVSA
Eiríkur Þór Theodórsson, Stétt Vest
Sindri Már Smárason, Afl
Ástþór Jón Tryggvason, VLFS
Aðalbjörn Jóhannsson, Framsýn
Margrét Arnarsdóttir, FÍR

Varastjórn:
Kristinn Örn Arnarson, Efling
Ólafur Ólafsson, Eining Iðja
Hafdís Erna Ásbjarnardóttir, Einingu Iðja
Birkir Snær Guðjónsson, Afl
Elín Ósk Sigurðardóttir, Stétt Vest

Stjórnin skiptir með sér verkum og kaus sér formann, varaformann og ritara.
Formaður ASÍ-UNG er Aðalbjörn Jóhannsson.
Varaformaður er Eiríkur Þór Theodórsson.
Ritari er Alma Pálmadóttir.

 

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com