Skip to main content
AldanVMF

ASÍ-UNG krefst úrbóta!

By August 19, 2019No Comments

Ályktun stjórnar ASÍ-UNG vegna nýrrar vinnumarkaðsskýrslu.

Stjórn ASÍ-UNG skorar á atvinnurekendur og stjórnvöld að stöðva brot gegn ungu fólki á vinnumarkaði.

Í kjölfar nýrrar vinnumarkaðsskýrslu Alþýðusambands Íslands lýsir ASÍ-UNG yfir þungum áhyggjum af stöðu ungs fólks á íslenskum vinnumarkaði.

Eins og fram kemur í skýrslunni er mun líklegra að brotið sé á réttindum ungs fólks og þeirra af erlendum uppruna en annarra á vinnumarkaði. Niðurstöðurnar koma ungu fólki á vinnumarkaði ekki á óvart enda veruleiki sem mörg ungmenni hafa fengið að reyna á eigin skinni. Siðleysi á meðal atvinnurekenda sem geta ekki sýnt ungu fólki nægilega virðingu til að virða lög- og kjarasamningsbundinn rétt þess er mikið og afleiðingin tvískiptur vinnumarkaður þar sem ungt fólk stendur höllum fæti. 

Meðal þeirra réttinda sem um ræðir eru veikindaréttur, orlofsréttur, lágmarkslaun, vaktskipulag og ráðningarsamningar. Réttindi sem barist hefur verið fyrir og eiga að þykja sjálfsögð fyrir vinnandi fólk.

Nú er mál að linni. ASÍ-UNG skorar á atvinnurekendur og stjórnvöld að bæta strax úr og stöðva brot gegn ungu fólki.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com