Skip to main content
AldanStéttarfélag.isVMF

ASÍ varar við vaxtahækkunum

By February 8, 2022No Comments
ASÍ Logo
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands (ASÍ), hefur sent fulltrúum í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands bréf þar sem varað er við stórfelldum vaxtahækkunum til að bregðast við verðbólgu. Hvetur hún nefndina til að til að huga að öðrum stjórntækjum bankans.Erindið er sent fulltrúum í peningastefnunefnd í ljósi þess að nefndin kemur saman til vaxtaákvörðunarfundar á morgun, miðvikudag. Í því segir að vaxtahækkun muni hafa í för með sér hreina kjaraskerðingu almennings. Bent er á að aukna verðbólgu megi einkum rekja til aðstæðna á húsnæðismarkaði. Gagnrýnt er að ekki hafi verið brugðist fyrr við með inngripum á húsnæðismarkaði.Í erindi forseta ASÍ segir enn fremur að ekki sé einsýnt að hækkun vaxta ein og sér nægi til að minnka verðbólgu. Peningastefnunefnd er hvött til varkárni í viðbrögðum sínum. Verðbólga og verðhækkanir þrengi nú að heimilum landsmanna og íþyngjandi aðgerðir geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir framfærslu mjög margra.

Hér má nálgast áskorun forseta ASÍ til peningastefnunefndar í heild sinni.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com