Stéttarfélag.is

ASÍ: Verð hækkar lítillega en mikill verðmunur áfram milli verslana

By September 2, 2026No Comments

Verð á dagvöru hækkaði að meðaltali um 0,14% milli júlí og ágúst, samkvæmt nýjustu mælingu verðlagseftirlits ASÍ. Nokkuð hefur hægt á verðhækkunum á matvöru sem mældust miklar í upphafi árs. Á sama tíma sýnir nýr verðsamanburður ASÍ að mikill og viðvarandi verðmunur er á sömu vörum eftir því hvar verslað er.

Í nýjum verðsamanburði ASÍ á 561 vöru var miðgildi verðmunar milli lægsta og hæsta verðs um 42%, Prís var oftast með lægsta verð en Krambúðin oftast með hæsta verð.

Prís ódýrast – 10-11 dýrust
Séu borin saman verð á 561 vöru sem fékkst í tíu verslunum í ágúst var lægsta verðið oftast að finna í Prís, eða á 317 vörum, og Bónus næstoftast, á 123 vörum. Þegar hæsta verðið er skoðað snýst myndin við. Krambúðin var oftast dýrust, á 186 vörum, Kjörbúðin á 138 vörum og 10-11 á 124 vörum.

Sé verðmunur milli verslana mældur má sjá að neytendur geta gert ódýrustu innkaupin í Prís. Verðlag í Bónus er að jafnaði 4% hærra en þar sem varan er ódýrust, sem oftast er í Prís. Krónan er að jafnaði 5% dýrari en ódýrasta verslun og þar á eftir fylgir Nettó um 10% dýrari en ódýrasta verslun. Verðlag í Kjörbúðinni og Hagkaupum er um 30% hærra en þar sem ódýrast er að versla en hæsta verðlag á vörum er að finna í 10-11.

Verðmunur milli vara getur þó verið mjög breytilegur. Af þeim vörum sem fengust í tíu verslunum í ágúst var munurinn á hæsta og lægsta verði 30% eða meiri á nærri átta af hverjum tíu vörum.

Þetta er í samræmi við þróunina sem verðlagseftirlit ASÍ hefur mælt yfir lengri tíma. Verð í dýrari verslunum hefur að jafnaði verið tugum prósenta hærra en þar sem sama vara fæst ódýrust. Þannig getur meðalverð dagvöru hækkað um brot úr prósenti milli mánaða á sama tíma og tugir prósenta skilja að verð á nákvæmlega sömu vöru milli verslana.

Mikill munur á algengum vörum
Munurinn verður sérstaklega áþreifanlegur þegar skoðuð er vörukarfa með 25 algengum mat- og dagvörum, þar á meðal brauði, mjólkurvörum, pylsum, kaffi, morgunkorni og drykkjarvörum.

Mylluheimilisbrauð kostaði til dæmis 349 krónur þar sem það var ódýrast í Prís en 729 krónur í Krambúðinni þar sem það var dýrast. Einn lítri af léttmjólk kostaði frá 266 krónum í Prís upp í 419 krónur í 10-11 og Felix-tómatsósa frá 309 krónum í Prís upp í 499 krónur í Kjörbúðinni.

Á einstökum vörum er munurinn enn meiri. Tunnock’s Caramel Bar kostaði 98 krónur í Bónus þar sem hann var ódýrastur en 469 krónur í 10-11 þar sem hann var dýrastur og er því um fjórfalt dýrari í 10-11. Bonaqua með skógarberjabragði kostaði frá 124 krónum í Prís upp í 329 krónur í 10-11.

Niðurstöðurnar sýna að fyrir heimilin skiptir ekki aðeins máli hvernig verðlag þróast frá einum mánuði til annars heldur einnig að það getur verið nokkurra tuga prósenta verðmunur á einstökum vörum sem safnast fljótt upp þegar vörunum fjölgar.

Um verðtökuna
Verðlagseftirlitið kannaði verð í verslunum dagana 10.-25. ágúst. Verð voru könnuð í 10-11, Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaupum, Kjörbúðinni, Krambúðinni, Fjarðarkaupum, Prís og SPAR.  Í samantektinni að ofan eru verð borin saman í öllum verslununum. Öll verð ásamt nýjustu verðum geta neytendur nálgast í Nappinu eða á verdlagseftirlit.is.

Í verðsamanburði er miðað við hilluverð sem neytandi hefur upplýsingar um í versluninni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/tilboðsverð af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.