Skip to main content
VMF

Átak gegn verðhækkunum

By February 26, 2013No Comments

Í dag hefst átak gegn verðhækkunum undir yfirskriftinni – Vertu á verði.
Verslunarmannafélag Skagafjarðar hvetur félagsmenn sína til að sýna samábyrgð og senda inn ábendingar um verðbreytingar á heimasíðu átaksins.

Vertu á verði!
– stöndum saman og rjúfum vítahring verðbólgunnar


Verslunarmannafélag Skagafjarðar og önnur stéttarfélög innan ASÍ hefja í dag átak gegn verðhækkunum undir yfirskriftinni – Vertu á verði.
Almenningur og atvinnulífið eru hvött til að taka höndum saman og rjúfa vítahring verðbólgunnar.
Átakinu er ætlað að veita fyrirtækjum og stofnunum aðhald í verðlagsmálum og vekja neytendur til aukinnar vitundar.


ÞÚ getur hjálpað til !!!


Sendu ábendingar um verðhækkanir á – www. vertuaverdi.is
Á heimasíðu átaksins vertuaverdi.is geta allir sent inn ábendingar um verðhækkanir á fljótlegan og einfaldan hátt.
Þannig getum við sameiginlega skapað mikilvægt aðhald, meðvitund og umræðu um verðlagsmál.


Það er hagsmunamál okkar allra að vera á verði og láta vita.


Verðbólgan versti óvinur launafólks
Launafólk er langþreytt á að hóflegar launahækkanir sem samið er um í kjarasamningum séu sífellt notaðar til að réttlæta miklar verðhækkanir og aukna verðbólgu.  Við endurskoðun kjarasamninga nú í janúar lögðu fulltrúar launafólks mikla áherslu á að samstaða yrði meðal fyrirtækja og opinberra aðila um að sýna aðhald í verðhækkunum svo nýtilkomnar launahækkanir skili sér í auknum kaupmætti launafólks.


Allir þurfa nú að taka höndum saman – sýna ábyrgð og stöðva verðhækkanir – það gagnast okkur öllum.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com