Skip to main content
AldanVMF

Athugasemd frá ASÍ vegna flugfélagsins Play

By November 6, 2019No Comments

Vegna áforma um stofnun nýs íslensks flugfélags, Flugfélagsins Play, sem hyggst fljúga frá Íslandi til áfangastaða í Evrópu og Bandaríkjunum, vill ASÍ taka eftirfarandi fram.

Vegna áforma um stofnun nýs íslensks flugfélags, Flugfélagsins Play, sem hyggst fljúga frá Íslandi til áfangastaða í Evrópu og Bandaríkjunum, vill ASÍ taka fram eftirfarandi:

Gerð verður krafa um að félagið, eins og aðrir atvinnurekendur sem starfa hér á landi, gangi til kjarasamninga um kjör starfsmanna sinna áður en það hefur sig til flugs. ASÍ treystir því að hið nýja fyrirtæki ætli sér ekki að keppa á íslenskum flug- og ferðamarkaði á grundvelli félagslegra undirboða.

ASÍ mun ekki láta það yfir íslenskt launafólk ganga að félagsleg undirboð og lögbrot fyrirtækja eins og Primera Air verði endurtekin eða látin átölulaus af stjórnvöldum.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com