Aukaársfundur Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn fimmtudaginn 22. júní 2017 kl. 13:00 í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Athygli skal vakin á að allir sjóðsfélagar eiga rétt til setu á fundinum með málfrelsi og tillögurétti.

Dagskrá fundarins:
1. Setning aukaársfundar
2. Breytingar á samþykktum sjóðsins
3. Önnur mál
Breyta þarf samþykktum sjóðsins svo launamenn geti frá 1. júlí nk. ráðstafað iðgjaldi umfram 12% í svokallaða tilgreinda séreign líkt og kveðið er á um í kjarasamningi ASÍ og SA frá 21. janúar 2016.
Tillögur að breytingum eru aðgengilegar á vef sjóðsins, www.stapi.is