Skip to main content
AldanVMF

Bónus oftast með lægsta verðið á bökunarvörum en minnsta vöruúrvalið

By November 11, 2015No Comments

Bónus Ísafirði var oftast með lægsta verðið og Iceland Engihjalla var oftast með hæsta verðið í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum, mánudaginn 9. nóvember. Kannað var verð á 112 algengum vörum til baksturs og konfektgerðar.

Bónus Ísafirði var oftast með lægsta verðið og Iceland Engihjalla var oftast með hæsta verðið í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum, mánudaginn 9. nóvember. Kannað var verð á 112 algengum vörum til baksturs og konfektgerðar.

Iceland var oftast með hæsta verðið eða í 45 tilvikum af 112 og Samkaup-Úrval Miðvangi í 34 tilvikum. Bónus var oftast með lægsta verðið í könnuninni eða í 37 tilvikum af 112, Krónan í 27 tilvikum og Fjarðarkaup í 19. Flestar vörurnar sem skoðaðar voru, voru fáanlegar hjá Fjarðarkaupum eða 105 af 112 og næstflestar hjá Iceland eða 104. Minnsta úrvalið var hjá Bónus eða aðeins um helmingur þeirra vara sem skoðaðar voru í könnuninni.

Mikill verðmunur reyndist vera á þeim vörum sem skoðaðar voru. Mesti verðmunur var á ljósum púðursykri frá Kötlu 500 gr. sem var ódýrastur á 177 kr. hjá Bónus en dýrastur á 349 kr. hjá Iceland sem er 172 kr. verðmunur eða 97%. Minnsti verðmunurinn var á fínu kókosmjöli frá Hagver 500 gr. sem var ódýrast á 388 kr. hjá Fjarðarkaupum en dýrast á 409 kr. hjá Iceland og Hagkaupum Skeifunni sem er 5% verðmunur.

Af þeim bökunarvörum sem könnunin náði til og voru fáanlegar í öllum verslunum má nefna nokkur dæmi um verðmun. Appelsínusúkkulaði frá Nóa Síríus 100 gr. var ódýrast á 174 kr. hjá Bónus, en dýrast á 209 kr. hjá Iceland sem er 20% verðmunur. Þurrkuð epli frá Hagver 250 gr. voru dýrust á 479 kr. hjá Iceland en ódýrust á 353 kr. hjá Fjarðarkaupum sem er 36% verðmunur. 500 gr. af flórsykri frá Dansukker var dýrastur á 249 kr. hjá Iceland en ódýrastur á 149 kr. hjá Bónus og Krónunni sem er 67% verðmunur. Að lokum má nefna að vanilludropar frá Kötlu voru dýrastir á 206 kr. hjá Samkaupum-Úrvali en ódýrastir á 149 kr. hjá Bónus og Krónunni sem er 38% verðmunur.

Verðsamanburður á bökunarvörum.

Kannað var verð á 112 vörum til baksturs t.d. mjólkurvörum, feitmeti, súkkulaði, ásamt ýmsum pakkavörum.

Í könnuninni var skráð niður hilluverð vöru eða það verð sem neytandinn hefur upplýsingar um inni í búðinni að hann eigi að greiða fyrir vöruna. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur af merktu verði við kassa var skráð afsláttarverð.

Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus, Krónunni, Nettó, Iceland, Víði, Fjarðarkaupum, Samkaupum Úrval og Hagkaupum.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com