Skip to main content

Samþykktar hafa verið nýjar úthlutunarreglur Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks.
Nýjar reglur eiga að gera félagsmönnum með lægri laun kleyft að ávinna sér inn réttindi hraðar. Einnig er það von sjóðsins að nýju reglurnar hvetji félagsmenn til frekari þátttöku í símenntun.

Breyting á starfsreglum Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks
 
Samþykktar hafa verið nýjar úthlutunarreglur Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks.
Nýjar reglur eiga að gera félagsmönnum með lægri laun kleyft að ávinna sér inn réttindi hraðar.
Einnig er það von sjóðsins að nýju reglurnar hvetji félagsmenn til frekari þátttöku í símenntun.
 
Samkvæmt núverandi kerfi safna félagsmenn stigum eftir því hvað þeir fá í tekjur. Kerfið er því tekjutengt.
Samkvæmt nýju reglunum fellur þetta stigakerfi úr gildi. Með nýju reglunum myndast réttindi í krónum eftir félagsgjaldi síðastliðna 12 mánuði og eru réttindi hlutfallsleg ef launahlutfall er lægra en 100%.
Fullgildur félagsmaður getur fengið greiddan styrk að upphæð 90.000 kr á ári en hægt er að safna styrknum í 3 ár og nýta þá 270.000 kr. fyrir eitt samfellt nám.
Ekki er hægt að safna upp umfram þá upphæð.

Nýju reglurnar kveða á um að hægt sé að sækja um 75% af kostnaði við starfsnám, en 50% af kostnaði við tómstundanám.
Um áramótin 2013-2014 mun tveggja ára aðlögunartímabil hefjast þar sem stefnt er að því að félagsmenn geti sótt um í
Starfsmenntasjóðinn samkvæmt því kerfi sem hagnast þeim best. Þannig eiga þeir sem eiga mörg uppsöfnuð stig í sjóðnum að fá tækifæri til þess að nýta þau til ársins 2016, en á sama tíma fá þeir félagsmenn sem hagnast meira á nýju reglunum tækifæri til þess að sækja um samkvæmt þeim.

Reglurnar eru í heild sinni á heimasíðu VR og Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólk http://www.starfsmennt.is/

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com