Skip to main content
AldanVMF

COVID-19 og fjarvistir frá vinnu

By March 3, 2020No Comments

Alþýðusamband Íslands áréttar að launafólk sem sett er í sóttkví, eða sem gert er að læknisráði að halda sig heima við vegna þess það sé annað af tvennu; sýkt af COVID-19 eða sé hugsanlegir smitberar hans, er að mati ASÍ óvinnufært vegna sjúkdóms. Þau forföll eru greiðsluskyld skv. ákvæðum kjarasamninga og laga.

Að gefnu tilefni vill Alþýðusamband Íslands taka fram að launafólk sem sett er í sóttkví, eða sem gert er að læknisráði að halda sig heima við og umgangast ekki vinnufélaga eða annað fólk í umhverfi sínu vegna þess það sé annað af tvennu sýkt af COVID-19 eða sé hugsanlegir smitberar hans, er að mati ASÍ óvinnufært vegna sjúkdóms eða vegna hættu á því að verða óvinnufært vegna hans. Þau forföll eru greiðsluskyld skv. ákvæðum kjarasamninga og laga.
Miðstjórn ASÍ mun fjalla um þá stöðu sem upp er komin og viðbrögð við henni á fundi sínum n.k. miðvikudag.

Drífa Snædal,
forseti ASÍ

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com