Skip to main content

Ókeypis námskeið!

Fræðslusjóðir Landsmenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og Sjómenntar hafa gert samning við Dale Carnegie um 100% niðurgreiðslu á námskeiðinu Dale á milli starfa.

Fræðslusjóðir Landsmenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og Sjómenntar hafa gert samning við Dale Carnegie um 100% niðurgreiðslu á námskeiðinu Dale á milli starfa. Þetta nýja námskeið er fyrir alla sem eru á milli starfa eða í leit að atvinnutækifærum og sýna niðurstöður gæðamats mikla ánægju með námskeiðið.  

Dale á milli starfa er LIVE ONLINE námskeið sem er að fullu niðurgreitt fyrir félagsmenn Landsmenntar, Ríkismenntar, Sveitamenntar og Sjómenntar.  Um er að ræða netnámskeið, einu sinni í viku í 6 skipti og svo eitt eftirfylgniskipti.

Tveir alþjóðlega vottaðir Dale Carnegie þjálfarar leiða þetta 6 skipta námskeið sem er einu sinni í viku í tvo og hálfan tíma í senn.  Webex þjálfunarumhverfið býður upp á þátttöku í rauntíma þar sem verkefnavinna, coaching og umræður fara fram á líflegan máta.  Sérstakur tæknilegur aðstoðarmaður sér um að lágmarka tæknitruflanir og að enginn lendi í vandræðum með tengingar.
Nánari upplýsingar og skránig er hér: www.dale.is/bokanir
 

 
Markmið námskeiðsins eru:
  • Efla sjálfstraust og auka eldmóð til að setja kraft í atvinnuleit, leita nýrra tækifæra og vinna með styrkleika sína.
  • Stækka tengslanetið til að styrkja fagleg tengsl og byggja upp ný sambönd
  • Auka tjáningarhæfni til að skapa jákvæð áhrif og koma faglega fyrir og af öryggi í mismunandi aðstæðum. 
  • Bæta viðhorf, minnka kvíða og stjórna streitu í krefjandi aðstæðum og undir álagi.
  • Gerð ferilskráar og styrkja ásýnd á samfélagsmiðlum til að auka trúverðugleika og leggja áherslu á styrkleika. 
 
Fyrirkomulag:  Einu sinni í viku í tvo og hálfan tíma í senn í 6 skipti og fer fram LIVE ONLINE á netinu.  Fjórum vikum eftir að námskeiði lýkur er síðan boðið upp á eftirfylgnitíma í 90 mínútur.  
Námskeiðsgjaldið er að fullu greitt af fræðslusjóðunum Landsmennt, Ríkismennt, Sveitamennt og Sjómennt og sendir Dale Carnegie reikninginn fyrir þátttökugjaldinu beint á fræðslusjóðina.
 
 
Það sem verður farið yfir á námskeiðinu:
Gerð framtíðarsýnar og hnitmiðuð markmiðasetning að stefna að næstu 3-6 mánuði.  
Setjum eldmóð í þau verkefni sem hafa áhrif á árangur okkar
Tökum styrkleikaprófið til að koma auga á styrkleika sem nýtast okkur þegar á móti blæs  og á hvaða sviðum við viljum bæta okkur
Gerum ferilskrá með áherslu á styrkleika  og bætum ásýnd á samfélagsmiðlum
Stækkum tengslanetið og kortleggjum lykilsambönd
Lærum reglur í mannlegum samskiptum og skuldbindum okkur til að beita þeim til að opna fyrir ný sambönd
Aukum trúverðugleika í tjáningu með því að þekkja hvernig styrkleikar okkar nýtast og  hvernig við komum okkar persónulega vörumerki á framfæri
Viðhöldum jákvæðu viðhorfi og stjórnum áhyggjum og kvíða
Stækkum þægindahringinn til að auka kjark og þor og vera sveigjanlegri
Komum  auga á árangur af því að sýna eldmóð, bæta samskipti og veitum öðrum innblástur og hvatningu.
 
 
Námskeiðinu fylgir rafræn handbók á íslensku, gullna reglubókin og annað ítarefni.
 
Live Online fjárþjálfun á sér stað í rauntíma þar sem þátttakendur taka virkan þátt. Það eru tveir þjálfarar á því námskeiði þar sem annar er með fókus á tæknihliðinni að lágmarka tæknitruflanir og að enginn lendi í vandræðum með tengingar.
 
Nánari upplýsingar og skránig er hér: www.dale.is/bokanir
Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com