Skip to main content
AldanVMF

Dekkjaverkstæði taka sig saman og neita þátttöku í verðkönnun ASÍ

By April 19, 2016No Comments

Um helmingur dekkjaverkstæða neitaði þátttöku í könnun verðlagseftirlits ASÍ þegar gerð var tilraun til að kanna verð á dekkjaskiptum nú í byrjun apríl. Vísbendingar eru um að samráð hafi verið milli aðila um að vísa fulltrúum verðlagseftirlitsins frá og neita þannig að upplýsa neytendur um verð á þjónustu sinni.

Um helmingur dekkjaverkstæða neitaði þátttöku í könnun verðlagseftirlits ASÍ þegar gerð var tilraun til að kanna verð á dekkjaskiptum nú í byrjun apríl. Vísbendingar eru um að samráð hafi verið milli aðila um að vísa fulltrúum verðlagseftirlitsins frá og neita þannig að upplýsa neytendur um verð á þjónustu sinni. Dæmi voru einnig um að þjónustuaðilar vísuðu verðtökufólki á annan stað, svo sem á skrifstofu viðkomandi fyrirtækis, til þess að fá uppgefið verð. Slíkt samræmist ekki þeim sjálfsagða rétti neytenda að fá skýrar og skilmerkilegar upplýsingar um verð vöru og þjónustu á sölustað og gengur alfarið gegn verklagsreglum verðlagseftirlitsins um framkvæmd verðkannana.

Verðlagseftirlit ASÍ leggur ætíð áherslu að framkvæmd verðkannana og úrvinnsla sé vönduð og í samræmi við verklagsreglur. Reynslan af verðkönnunum hjá dekkjaverkstæðum á undanförunum árum sýnir að það er að jafnaði mikill verðmunur á milli þjónustuaðila og full ástæða fyrir neytendur að bera saman verð. Að fyrirtæki velji að neita fulltrúum neytenda um að safna og birta þessar upplýsingar veldur verulegum vonbrigðum og vekur eðlilega upp spurningar um hvað slík fyrirtæki hafi að fela. Þá vakti athygli að á nokkrum hjólbarðaverkstæðum bar á hreinum og klárum dónaskap í garð verðtökufólks.

Verðlagseftirlit ASÍ getur því ekki birt upplýsingar um verð á umfelgun vorið 2016 eins og það hefur gert mörg undanfarin ár.

Eftirtaldir þjónustuaðilar neituðu fulltrúum verðlagseftirlitsins um aðgang að verði á þjónustu sinni: Betra grip, N1, Dekkjahöllin, Gúmmívinnustofan, Bílkó, Dekkjahúsið, Bifreiðaverkstæði SB, Klettur, Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs, Barðinn, Sólning, Nesdekk Grjóthálsi, KvikkFix og Hjólbarðaverkstæði Kaldasels.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com