Félagsmenn Öldunnar eiga rétt á desemberuppbót samkvæmt kjarasamningum.
Upphæðina skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof.
Félagsmenn Öldunnar eiga rétt á desemberuppbót samkvæmt kjarasamningum.
Upphæðina skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof.
Starfsmenn á almennum markaði fá 50.500 krónur. Greiða skal fyrir 15. desember.
Starfsmenn ríkisins fá 50.500 krónur. Greiða skal fyrir 1. desember.
Starfsmenn sveitarfélags fá 78.200 krónur og skal greiða fyrir 1. desember.
Starfsmenn Hádranga fá 78.200 krónur og skal greiða fyrir 21. desember.
Starfsmenn Steinullar fá 110.232 krónur sem greiddar eru í desember.
Þessar tölur miðast við fullt starf en reiknast annars miðað við starfshlutfall og starfstíma.
Fullt starf telst vera 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof.
Allar frekari upplýsingar fást á skrifstofu félagsins.