Skip to main content

Yfirvofandi er verkfall framhaldsskólakennara en félagsmenn í aðildarfélögum SGS er að finna innan framhaldsskólanna og mikilvægt að það launafólk sé upplýst um stöðu sína, þ.e. skyldur þeirra og réttindi, ef til verkfalls skyldi koma.

Yfirvofandi er verkfall framhaldsskólakennara en félagsmenn í aðildarfélögum SGS er að finna innan framhaldsskólanna og því mikilvægt að það launafólk sé upplýst um stöðu sína, þ.e. skyldur þeirra og réttindi,  ef til verkfalls skyldi koma.

Verkfallið tekur aðeins til þeirra sem eru félagar í Félagi framhaldsskólakennara og Félagi stjórnenda í framhaldsskólum.
Það tekur ekki til húsvarða, starfsfólks í mötuneytum, starfsfólks við ræstingar eða annarra sem vinna almenn störf í framhaldsskólum. Þeim er þó óheimilt að ganga í störf kennara.

Þeir félagsmenn Öldunnar sem starfa innan framhaldsskólanna hafa mætingarskyldu og vinnuskyldu í verkfalli kennara. Þeim ber að mæta á hefðbundnum tíma og sinna sínum daglegu verkefnum eins og ekkert hafi í skorist eins og þeim er framast unnt. Þeir fá líka óskert laun í verkfalli kennara.

Samkvæmt flestum ráðningarsamningum geta stjórnendur falið starfsfólki tilfallandi verkefni og skal starfsfólk ganga í þau verk sem óskað er, þ.e. ef þau ganga ekki inn á verksvið kennara eða stjórnenda í verkfalli. Því er sennilegt að ef til verkfalls kemur verði tækifærið nýtt til að gera hreint eða sinna öðrum störfum sem ekki hefur unnist tækifæri til.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com