Skip to main content

Greiðslur og vinnufyrirkomulag í ræstingum getur verið með mismunandi hætti og er því mjög mikilvægt að félagsmenn séu vel upplýstir hvort verið sé að greiða rétt laun í samræmi við vinnuframlagið.

Greiðslur og vinnufyrirkomulag í ræstingum getur verið með mismunandi hætti og er því mjög mikilvægt að félagsmenn séu vel upplýstir hvort verið sé að greiða rétt laun í samræmi við vinnuframlagið.  Algengasta fyrirkomulagið hefur verið tímamæld ákvæðisvinna í ræstingum þar sem ræstingastykkin eru mæld og ávinningur starfsmanna felst í því að fá hærra greitt fyrir að ljúka stykkinu af á skemmri tíma. Einnig er hægt að greiða eftir hefðbundnu tímavinnufyrirkomulagi og reiknast þá 80% yfirvinnuálag fyrir vinnu eftir kl. 17:00 virka daga.  Þá er möguleiki að vinna samkvæmt vaktavinnufyrirkomulagi en þá er skilyrði að getið sé um slíkt í ráðningarsamningi með ákveðnu vinnufyrirkomulagi og starfshlutfalli. Hér að neðan má sjá frekari útlistun á viðkomandi launafyrirkomulagi (þetta á við ræstingarstörf á almennum vinnumarkaði).

——————————————————————————–

Tímamæld ákvæðisvinna
Þegar um tímamælda ákvæðisvinnu í ræstingu er að ræða gerir vinnufyrirkomulagið ráð fyrir meiri vinnuhraða en í hefðbundnu fyrirkomulagi og er því greitt hærra tímakaup.  Hér er mjög mikilvægt að skrifleg verklýsing liggi fyrir sem afmarkar skýrt það sem þrífa á og með hvaða áherslum. Tekið skal fram á hvaða tíma dags svæðið skal ræst og hve oft.  Ákvæðisvinnuálag fyrir tímamælda ákvæðisvinnu er 20%, þar af er 8% álag fyrir neysluhlé.  Neysluhlé er því ekki tekið á vinnutíma þar sem greitt er sérstaklega fyrir það í hærri taxta.

Launaflokkur 3 með 20% álagi frá 1. maí 2017 – 30. apríl 2018

 mán – fös 17:00 – 24:00 mán – fös 24:00 – 08:00 og lau./sun. 

                           Dagvinna     með 33%    með 45%     Yfirvinna*
                                                álagi*          álagi*       

Byrjunarlaun,
20 ára                1.780,86        2.368,54       2.582,24       3.205,60


1 ár,
í starfsgrein        1.792,87        2.384,52      2.599,67        3.227,23


3 ár,
í starfsgrein        1.805,07        2.400,74      2.617,35         3.249,19


5 ár,
í starfsgrein         1.817,45       2.417,21      2.635,30         3.271,47


*Fyrir vinnu umfram 40 stundir á viku skal greiða yfirvinnuálag
 Tímakaup fyrir hreingerningar eða sérverkefni greiðist með 45% álagi nema vinna fari yfir 40 stundir á viku, þá greiðist yfirvinnuálag.

——————————————————————————–

Tímavinna

Vinnufyrirkomulag tímavinnu miðast við hefðbundinn vinnuhraða þar sem starfsmenn eiga rétt á 35 mínútna neysluhléi á launum fyrir fullt starf á dagvinnutíma.  Vinnustundir eru því alla jafna fleiri en í tímamældri ákvæðisvinnu. Eftir kl. 17.00 reiknast 80% yfirvinnuálag á tímavinnu.

 

Launaflokkur 3    frá 1. maí 2017 – 30. apríl 2018

                                       Dagvinna      Yfirvinna
Byrjunarlaun, 18 ára      1.484,05          2.671,33
1 ár, í starfsgrein            1.494,06         2.689,36
3 ár, í starfsgrein            1.504,23         2.707,66
5 ár, í starfsgrein            1.514,54         2.726,22

——————————————————————————–

Vaktavinna

Nauðsynlegt er að tilgreint sé í ráðningasamningi ef um vaktavinnufyrirkomulag er að ræða og þarf þá starfshlutfall að vera fast skilgreint.  Fyrir vinnu umfram starfshlutfall í ráðningasamningi greiðist tímakaup, dagvinna á dagvinnutímabili og yfirvinna á yfirvinnutímabili.  Vinnufyrirkomulag í vaktavinnu miðast við hefðbundinn vinnuhraða eins og í tímavinnufyrirkomulagi og er neysluhlé 5 mínútur fyrir hvern unninn klukkutíma sem gerir 40 mínútur fyrir fullt starf á dag.

Starfsmenn í vaktavinnu ávinna sér 12 vetrarfrísdaga fyrir vinnu á helgidögum.  Miðað er við að frídagarnir séu teknir á tímabilinu 1. október – 1. maí en einnig er hægt að semja um greiðslur í stað frídaga, 8 klst. í dagvinnu fyrir hvern frídag miðað við fullt starf.

Algengast hefur verið að vaktavinna í ræstingum sé unnin á opinberum stofnunum eins og á sjúkrahúsum.

Launaflokkur 6 frá 1. maí 2017 – 30. apríl 2018

mán – fös 17:00-24:00 mán – fös 24:00 – 08:00 og lau./sun. 


                       Dagvinna      Yfirvinna    með 33%    með 55%        90%álag
                                                                 álagi           álagi*  

Byrjunarlaun,
18 ára             1.514,54        2.726,22      2.014,34      2.347,54         2.877,63


1 ár,
í starfsgrein     1.525,01       2.745,07       2.028,27      2.363,77        2.897,53


3 ár,
í starfsgrein      1.535,64      2.764,21       2.042,41      2.380,25        2.917,72


5 ár,
í starfsgrein      1.546,43       2.783,62      2.056,75      2.396,96        2.938,21

*45% álag hjá öðrum en opinberum stofnunum.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com