Skip to main content
VMF

Fimm sveitarfélög hækka verð á skóladagvistun og mat

By January 31, 2014No Comments

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrá fyrir skóladagvistun ásamt hressingu og verði á hádegismat fyrir yngstu nemendur grunnskólanna hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins.

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrá fyrir skóladagvistun ásamt hressingu og verði á hádegismat fyrir yngstu nemendur grunnskólanna hjá 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins.

Mesta hækkun síðan í byrjun árs 2013 á þriggja tíma daglegri vistun, ásamt síðdegishressingu í 21 dag, er í Hafnarfirði en þar hefur gjaldskráin hækkað um 10%, í Vestmannaeyjum um 4%, á Akranesi um 3% og Akureyri um 1%.

Mesta hækkunin á hádegismat er í Vestmannaeyjum en þar hefur gjaldið hækkað um 7% og á Akureyri um 6%.

Mikill verðmunur er á heildargjaldi fyrir skóladagvistun með hressingu og hádegismat milli sveitarfélaganna.
Lægsta mánaðargjaldið fyrir skóladagvistun m.v. 63 tíma á mánuði, hressingu og hádegismat hvern dag er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði á 20.139 kr./mán. en hæsta gjaldið er hjá Garðabæ eða 33.201 kr./mán. og er verðmunurinn þá 13.062 kr. eða 65%.

Alls hafa sex sveitarfélög sem skoðuð voru hækkað gjaldskrána á þessari þjónustu milli ára, þau eru; Hafnarfjörður, Vestmannaeyjar, Akranes, Akureyri, Reykjanesbær og Seltjarnarnes.
Ekki er tekið tillit til seðilgjalda eða annarra innheimtugjalda, sem leggjast ofan á gjöldin sem innheimt er jafnvel í tvennu lagi.

Lesa má fréttina í heild sinni á heimasíðu ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com