Skip to main content
Stéttarfélag.is

Finnbjörn A. Hermannsson kjörinn forseti ASÍ

By April 28, 2023No Comments
Finnbjorn
Finnbjörn A. Hermannsson var í dag kjörinn forseti ASÍ á 45. þingi Alþýðusambands Íslands. Finnbjörn var sjálfkjörinn í embættið og engin mótframboð bárust.Finnbjörn hefur áratuga reynslu af störfum í verkalýðshreyfingunni. Hann lét nýlega af störfum sem formaður Byggiðnar, áður Trésmíðafélags Reykjavíkur þar sem hann hafði verið í forsvari í 26 ár.

Þá voru kjörnir varaforsetar. Í embætti fyrsta varaforseta var kjörinn Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. Í embætti annars varaforseta var kjörin Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs starfsgreinafélags og í embætti þriðja varaforseta var kjörinn Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands. Engin mótframboð bárust.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com