Skip to main content
Aldan

Fjárlagafrumvarpið nagli í líkkistu velferðarsamfélagsins

By October 8, 2014No Comments

Stjórn Öldunnar ályktaði í gær vegna fjárlagafrumvarpsins sem nú liggur fyrir Alþingi og skorar á ríkisstjórn Íslands að endurskoða frumvarpið og taka upp samstarf við stéttarfélögin.

Ályktun stjórnar vegna fjárlagafrumvarps

Stjórn Öldunnar stéttarfélags lýsir yfir miklum vonbrigðum með stefnu ríkisstjórnar Íslands  sem birtist við gerð fjárlagafrumvarpsins sem nú liggur fyrir Alþingi. Það sætir undrun að þeir sem treyst er fyrir því að fara með forystu í landinu skuli í skjóli þessa valds síns leyfa sér að velja þá leið að tryggja hinum launahæstu enn betri afkomu á kostnað hinna tekjulægri. Það er fráleitt að ætla að halda því fram að umræddar breytingar á skattkerfi, hækkun á matvöru, stóraukinn kostnaður vegna lyfjakaupa og heilbrigðisþjónustu og skertur réttur atvinnulausra, öryrkja og ellilífeyrisþega  muni bæta hag heimila. Hverjum manni er ljóst að slíkar aðgerðir munu skerða lífsafkomu þorra þjóðarinnar og efla svarta hagkerfið. Er það markmiðið ?
Ef þetta framferði nær fram að ganga liggur í augum uppi að enn einn naglinn verður rekinn í líkkistu hins íslenska velferðarsamfélags.

Stjórn Öldunnar skorar hér með á ríkisstjórn Íslands að endurskoða fjárlagafrumvarpið og taka upp samstarf við stéttarfélögin með það að markmiði að byggja upp sanngjarnt samfélag sem við getum verið stolt af.

Stjórn Öldunnar stéttarfélags
07.10.2014

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com