Skip to main content

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað hjá 13 verslunum af 15 frá því í viku 5 – 2013 þar til í viku 6 2014. Hækkunin nemur allt að 6,8% en verðbólgan á sama tíma var um 4%. Aðeins tvær verslanir lækkuðu vörukörfuna á tímabilinu.

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað hjá 13 verslunum af 15 frá því í viku 5 – 2013 þar til í viku 6 2014. Hækkunin nemur allt að 6,8% en verðbólgan á sama tíma var um 4%. Aðeins tvær verslanir lækkuðu vörukörfuna á tímabilinu.

Vörukarfan hækkaði mest hjá Víði um 6,8%, um 5,6% hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, 5,5% hjá Nettó og 5,4% hjá Iceland, en hún lækkaði um 2,4% hjá Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga og 1,2% hjá Kaskó.

 

13 verslanir af 15 hafa hækkað verð hjá sér á síðustu 12 mánuðum
Til hliðsjónar má benda á að verð á matar- og drykkjarvörum í vísitölu neysluverðs hefur hækkað um 3,7% frá því í janúar 2013 til janúar 2014.
Verslanirnar Víðir, Nettó, Iceland, Kaupfélag Skagfirðinga og Kaupfélag Steingrímsfjarðar hækkuðu meira en vísitala neysluverðs. Bónus, Krónan, Hagkaup, Nóatún, Samkaup–Úrval, 10-11, Samkaup–Strax og Kjarval hækka minna en vísitalan en hjá Kaskó og Kaupfélagi Vestur Húnvetninga hefur verð vörukörfunnar lækkað á milli ára. 

Verðlagseftirlit ASÍ mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðal heimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar matar og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos og safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs. Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis.

Verðbreytingar voru skoðaðar í eftirfarandi verslunum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Iceland; í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrvali, Tíu-ellefu, Samkaupum-Strax og Víði; í verslunum á landsbyggðinni Kjarval, Kaskó, Kaupfélagi Skagfirðinga, Kaupfélagi Steingrímsfjarðar og Kaupfélagi Vestur-Húnvetninga.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli verðmælinga. Ekki er um beinan verðsamanburð að ræða. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar. 

Óheimilt er að vitna í niðurstöðurnar í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com