Skip to main content
Aldan

Forysta SGS kjörin á þingi sambandsins

By October 12, 2017No Comments

Sjötta reglulega þingi Starfsgreinasambands Íslands (SGS) lauk á hádegi í dag. Á þinginu voru samþykktar starfs- og fjárhagsáætlanir, nokkrar ályktanir um kjara- og velferðarmál og forysta kjörin fyrir sambandið næstu tvö árin.

Sjötta reglulega þingi Starfsgreinasambands Íslands (SGS) lauk á hádegi í dag. Á þinginu voru samþykktar starfs- og fjárhagsáætlanir, nokkrar ályktanir um kjara- og velferðarmál og forysta kjörin fyrir sambandið næstu tvö árin.

Björn Snæbjörnsson frá Einingu Iðju var endurkjörinn formaður og Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir frá AFLi starfsgreinafélagi var endurkjörin varaformaður.

Aðalmenn framkvæmdastjórnar SGS eru eftirfarandi: Aðalsteinn Á. Baldursson frá Framsýn stéttarfélagi, Guðrún Elín Pálsdóttir frá Verkalýðsfélagi Suðurlands, Halldóra S. Sveinsdóttir frá Bárunni stéttarfélagi, Kolbeinn Gunnarsson frá Verkalýðsfélaginu Hlíf og Ragnar Ólason frá Eflingu stéttarfélagi.

Til vara voru kjörnir fimm, Vilhjálmur Birgisson frá Verkalýðsfélagi Akraness er fyrsti varamaður, Anna Júlíusdóttir frá Einingu Iðju er annar varamaður, þriðji varamaður er Þórarinn Sverrisson frá Öldunni stéttarfélagi, fjórði varamaður er Linda Baldursdóttir frá Verkalýðsfélaginu Hlíf og fimmti varamaður er Guðmundur Finnbogason frá Stéttarfélaginu Samstöðu.

Skoðunarmenn reikninga eru þau Fanney Friðriksdóttir og Tryggvi Marteinsson, bæði frá Eflingu stéttarfélagi og til vara Magnús S. Magnússon frá Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis.

Sjálfkjörið var í öll embætti.

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com