Skip to main content

Sjómennt, fræðslusjóður sjómanna, vekur athygli á breytingu á styrkfjárhæð vegna tómstundanáms, hvaða námskeið eru ekki styrkhæf og hvaða gögn þurfa að fylgja umsóknum til sjóðsins.

Sjómennt, fræðslusjóður sjómanna, vekur athygli á breytingu á styrkfjárhæð vegna tómstundanáms, hvaða námskeið eru ekki styrkhæf og hvaða gögn þurfa að fylgja umsóknum til sjóðsins.
 
Breytt upphæð tómstundastyrkja:
Frá 1. desember næstkomandi hækkar upphæð fyrir tómstundastyrki  upp í 20.000 kr., þó aldrei meira en 75% af námskeiðsgjaldi.
 
Aðrar upphæðir styrkveitingar eru óbreyttar:
Fyrir almenna styrki að hámarki 60.000 kr. á ári, þó aldrei meira en 75% af námskeiðsgjaldi.

Fyrir meirapróf allt að 100.000 kr. á ári, þó aldrei meira en 75% af námskeiðsgjaldi.
 
Sjómennt styrkir kaup á hjálpartækjum vegna rit- og lesörðugleika.
 
Athugið að réttur safnast ekki upp milli ára.
Noti félagsmaður ekki styrkinn á tilteknu ári þá fyrnist réttur hans. Félagsmenn þurfa að sækja um styrk og skila inn viðeigandi fylgigögnum innan 12 mánaða frá því að námskeiði/námi lýkur
.
 
 
 
Námskeið sem ekki eru styrkhæf hjá Sjómennt:
 
Af gefnu tilefni skal það ítrekað að útgerðum ber að greiða þátttökugjald starfsfólks síns í eftirfarandi námskeiðum.
Þau eru ekki styrkhæf hjá sjóðnum:
 
•             STCW-grunnnámskeið (5 dagar)
•             Endurmenntunarnámskeið í öryggisfræðslu STCW
               (2 dagar) 
•             Smábátanámskeið (1 dagur) 
•             Endurmenntun smábátasjómanna (4 tímar)
 
Neiti útgerð að greiða eiga sjómenn að sjálfsögðu að leita réttar síns hjá sínu stéttarfélagi.
Önnur námskeið eru ekki skylda og því styrkhæf hjá Sjómennt eins annað styrkhæft nám.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com