Skip to main content
AldanVMF

Frá fundi þjóðhagsráðs

By September 3, 2020No Comments

Þjóðhagsráð kom saman til fundar í gær en í ráðinu eiga sæti fulltrúar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Á fundinum var rætt um fjármálastefnu hins opinbera og þær breytingar sem lagðar hafa verið til á henni í ljósi Covid-19.

Þjóðhagsráð kom saman til fundar í gær en í ráðinu eiga sæti fulltrúar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Á fundinum var rætt um fjármálastefnu hins opinbera og þær breytingar sem lagðar hafa verið til á henni í ljósi Covid-19. 

Drífa Snædal, forseti ASÍ, áréttaði á fundinum að launafólk hefði tekið harðasta skellinn í yfirstandandi efnahagslægð en að áhrifin væru afar mismunandi eftir atvinnugreinum og landshlutum. Forgangsmál væri að tryggja afkomu fólks og koma í veg fyrir fjárhagsvanda heimilanna til frambúðar. Því valdi vonbrigðum að forsvarsmenn atvinnurekenda hafi breytt um afstöðu frá síðustu kreppu þegar samstaða náðist um að efla atvinnuleysistryggingar, en sem kunnugt er hefur SA skorið upp herör gegn atvinnuleitendum. 

Á fundi Þjóðhagsráðs lagði Drífa einnig áherslu á virkar vinnumarkaðsaðgerðir og að gera heldur meira en minna til að koma í veg fyrir að kreppan verði dýpri og skaðlegri en hún þarf að vera. Þá áréttaði hún að stjórnvöld þurfi að leita í smiðju samtaka launafólks. 

Aðgerðir beri þess merki að öðru fremur sé hlustað eftir viðhorfum atvinnurekenda. Í því sambandi vísaði Drífa til nýs starfshóps fjármálaráðherra um efnahagsleg áhrif sóttvarna en hópurinn er eingöngu skipaður fulltrúum stjórnvalda og atvinnurekenda. Drífa minnti einnig á mikilvægi þess að skapa störf sem henta bæði konum og körlum og líta til svæðisbundinna erfiðleika.

Næsti fundur þjóðhagsráðs er áætlaður í byrjun október.

 

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com