Skip to main content

Umhverfisnefnd ASÍ efnir til fræðslu- og umræðufundar um leiðir til að sporna við neikvæðum afleiðingum loftlagsbreytinga af manna völdum. Fundurinn er haldinn á Grand Hótel Reykjavík, miðvikudaginn 14.maí kl.8-10:15.

LOFTSLAGSBREYTINGAR OG ALMANNAHAGUR
Miðvikudaginn 14. maí kl. 08:00-10:15 á Grand Hótel Reykjavík

Eitt af mikilvægustu málefnum dagsins í dag eru loftlagsbreytingar af manna völdum og neikvæðar afleiðingar þeirra fyrir komandi kynslóðir. Umhverfisbreytingar hafa víðtæk áhrif á efnahags- og atvinnulíf framtíðarinnar og lífskjör almennings. Alþjóðlegur samtakamáttur er eina leiðin til að vinna gegn þessari þróun og þar hefur verkalýðshreyfingin mikilvægu hlutverki að gegna. 
Umhverfisnefnd ASÍ efnir til fræðslu- og umræðufundar um leiðir til að sporna við þessari uggvænlegu þróun og um leið að horfa til framtíðar. 
Fundurinn er haldinn á Grand Hótel Reykjavík.

Dagskrá hefst stundvíslega kl. 08:30 og lýkur kl. 10:15. Þátttökugjald er 2.500 krónur.
Vinsamlegast skráið þátttöku á fundinn hér.

Dagskrá:
8:00       Morgunverðarhlaðborð
8:30       Setning,  Heimir Janusarson, formaður umhverfisnefndar ASÍ
8:40       Stóra myndin – umhverfisleg sjálfbærni, fyrirtæki og
              starfsmenn
              Lára Jóhannsdóttir, nýdoktor í viðskiptafræðideild 
              og stjórnarmaður í Lífeyrissjóði starfsmanna Búnaðarbanka   
              Íslands

9:00       Er siðlaust að menga? Hlutverk verkalýðshreyfingarinnar á
              21. öldinni
              Þórunn Sveinbjarnardóttir, MA í hagnýtri siðfræði
              og fyrrverandi umhverfisráðherra

9:20       Umhverfis- og samfélagsábyrgð fyrirtækja
              Finnur Sveinsson, varaformaður Festu og sérfræðingur í 
              samfélagsábyrgð hjá Landsbankanum

9:45       Pallborðsumræður
  
               Auk frummælanda taka þátt í pallborði:
Drífa Snædal, framkvæmdastóri SGS
Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ

Fundarstjóri: Halldóra Sveinsdóttir, formaður Bárunnar stéttarfélags
 
 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com