Skip to main content
Aldan

Framkvæmdastjóri SGS ráðinn

By November 29, 2018No Comments

Flosi Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands. Tekur hann til starfa á næstu vikum.

Flosi Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands. Tekur hann til starfa á næstu vikum.

Flosi býr að víðtækri reynslu úr atvinnulífinu en hann  er húsasmiður og viðskiptafræðingur að mennt. Undanfarin ár hefur hann starfað hjá Íslandsstofu við fræðslu og ráðgjöf. Áður starfaði hann m.a. hjá ráðgjafarfyrirtækinu KPMG um 10 ára skeið og sem húsasmiður hjá ýmsum aðilum.

Flosi býr einnig að fjölbreyttri reynslu af félagsmálum, m.a. setu í bæjarstjórn Kópavogs frá 1998 til 2010 auk setu í ýmsum nefndum og ráðum fyrir sveitarfélög og ráðuneyti. Þess utan hefur hann tekið þátt í margvíslegu öðru félagsstarfi.

Ráðningarferlið var í höndum Capacent en alls bárust 17 umsóknir um stöðuna.

Starfsgreinasambandið býður Flosa velkominn til starfa og óskar honum velfarnaðar í störfum sínum fyrir sambandið.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com