Skip to main content
Aldan

Framvegis ryður brautina í endurmenntun atvinnubílstjóra

By April 28, 2016No Comments

Framvegis – miðstöð símenntunar er fyrsti viðurkenndi námskeiðshaldarinn sem hlýtur starfsleyfi frá Samgöngustofu vegna endurmenntunar atvinnubílstjóra en leyfið hlaust síðastliðinn miðvikudag.

Framvegis – miðstöð símenntunar er fyrsti viðurkenndi námskeiðshaldarinn sem hlýtur starfsleyfi frá Samgöngustofu vegna endurmenntunar atvinnubílstjóra en leyfið hlaust síðastliðinn miðvikudag. Í því felst að skipulag, innihald og fagstjórn námskeiða hjá Framvegis taki mið af þeim kröfum sem gerðar eru til námskeiðshaldara, bæði í námskrá Samgöngustofu og opinberum reglugerðum er varða endurmenntun bílstjóra.

Framvegis býður atvinnubílstjórum sérsniðin námskeið í endurmenntun sem Samgöngustofa hefur viðurkennt og samræmast ákvæðum í reglugerð nr. 830/2011 um ökuskírteini. Í kjölfar breytinga á umferðarlögum 50/1987 skulu ökumenn sem stjórna ökutækjum í C1-, C-, D1- og D-flokki til farþega- og vöruflutninga í atvinnuskyni gangast undir endurmenntun á fimm ára fresti.

Fyrsta námskeiðið var haldið síðastliðinn laugardag í samstarfi við Eimskip. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk Framvegis í síma 5811900 eða í gegnum netfangið bilstjori@framvegis.is

Hér má nálgast kynningarefni um námskeiðin.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com