Skip to main content
Tilkynningar

Frestur til að leggja fram aðra lista til stjórnarkjörs.

By February 14, 2017No Comments

A listi til stjórnarkjörs liggur fyrir en frestur til að leggja fram aðra lista rennur út kl. 12.00 þann 20. febrúar 2017. Er hvert það framboð gilt sem fram kemur innan þess tíma, er fullmannað, hefur skriflegt samþykki þeirra sem eru í framboði og meðmæli a.m.k. 30 fullgildra félaga.

Fyrir liggur  A-listi til stjórnarkjörs en hann skipa eftirfarandi:
Þórarinn G. Sverrisson, formaður.
Arna Björnsdóttir, ritari.
Anna Birgisdóttir, meðstjórnandi.
Haraldur Hjálmarsson, meðstjórnandi.

Frestur til að leggja fram aðra lista rennur út kl. 12.00 þann 20. febrúar 2017. Er hvert það framboð gilt sem fram kemur innan þess tíma, er fullmannað, hefur skriflegt samþykki þeirra sem eru í framboði og meðmæli a.m.k. 30 fullgildra félaga.
Komi fram fleiri en einn listi skal kjörstjórn láta kjósa um þá í allsherjaratkvæðagreiðslu í fyrsta lagi 1. apríl og í síðasta lagi 10. apríl.
Komi hins vegar ekki fram fleiri listar teljast þeir félagsmenn sem trúnaðarráð hefur gert tillögu um sjálfkjörnir.
Kosningu skal lýst á aðalfundi og tekur þá nýkjörin stjórn við félaginu.
Fullgildir framboðslistar skulu hafa borist kjörstjórn á skrifstofu stéttarfélaganna í síðasta lagi kl. 12:00 þann 20. febrúar n.k.

Allar upplýsingar um framlagningu lista eru veittar á skrifstofu stéttarfélaganna, að Borgarmýri 1, 550 Sauðárkróki, eða í síma: 453 5433.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com