Skip to main content
Aldan

Fréttir af samningamálum

By January 27, 2020No Comments

Ríkissáttasemjari hefur boðað viðræðunefnd SGS og samninganefnd ríkisins til formlegs fundar hjá sér síðdegis á morgun, þriðjudaginn 28. janúar. Er það í kjölfar þess að SGS vísaði samningaviðræðum við ríkið til sáttasemjara í síðustu viku eins og kunnugt er.

Eins og fram hefur komið skipuðu aðilar á opinbera vinnumarkaðnum sérstakan vinnuhóp til að ræða vaktavinnu í tengslum við yfirstandandi kjaraviðræður. Markmið hópsins er að leggja fram heildstæðar breytingar á fyrirkomulagi vaktavinnu sem taki á núverandi fyrirkomulagi og bregðist við margvíslegum vandamálum sem eru í því.
 
Vinnuhópurinn er skipaður fulltrúum SGS, BSRB, BHM, FÍH af hálfu launafólks og fulltrúum samninganefnda ríkis, sveitarfélaga og Reykjavíkurborgar, af hálfu atvinnurekenda. SGS hefur á undangengnum vikum gagnrýnt nokkuð vinnubrögðin hjá hópnum en undanfarnar vikur hefur orðið breyting þar á. Samninganefnd SGS hefur verið kölluð saman til fundar þriðjudaginn 28. janúar til að fara yfir hugmyndir hópsins og hvar á vegi vinnan er stödd.
 
Ríkissáttasemjari hefur boðað viðræðunefnd SGS og samninganefnd ríkisins til formlegs fundar hjá sér síðdegis þriðjudaginn 28. janúar. Er það í kjölfar þess að SGS vísaði samningaviðræðum við ríkið til sáttasemjara í síðustu viku eins og kunnugt er.
 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com