Skip to main content
Aldan

Fundur í dag um nýtt réttindakerfi hjá Stapa

By November 18, 2014No Comments

Minnum á opinn kynningarfund fyrir sjóðfélaga Stapa lífeyrissjóðs sem haldinn verður kl. 17 í dag á Mælifelli. Á fundinum mun Kári Arnór Kárason framkvæmdastjóri sjóðsins kynna hugmyndir að nýju réttindakerfi sem áformað er að Stapi lífeyrissjóður taki upp á næsta ári.

Endanleg ákvörðun um hvort þetta kerfi verður tekið í notkun verður tekin á næsta ársfundi sjóðsins og því mikilvægt að sjóðfélagar kynni sér málið vel og fái svör við þeim spurningum sem upp vakna.

Fundurinn er opinn öllum og eru sjóðfélagar Stapa eindregið hvattir til að mæta. Boðið verður upp á súpu og brauð í lok fundar.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com