Skip to main content

Stjórn félagsins sat fund með Gylfa Arnbjörnssyni, forseta ASÍ, vikunni. Á fundinn voru einnig boðaðar stjórnir Öldunnar stéttarfélags og Iðnsveinafélags Skagafjarðar.
Gylfi fór m.a. yfir sýn ASÍ á stöðu kjarasamningamála og möguleika verkalýðshreyfingarinnar í komandi kjarabaráttu. Ljóst er að ekki verður liðið að verkalýðsfólk beri eitt alla ábyrgð á stöðugleika í efnahagsmálum í samfélaginu á meðan aðrir hópar fá launahækkanir langt umfram það sem félagsmenn innan Alþýðusambandsins fá.

Stjórn félagsins sat fund með Gylfa Arnbjörnssyni, forseta ASÍ, í gærkvöldi. Á fundinn voru einnig boðaðar stjórnir Öldunnar stéttarfélags og Iðnsveinafélags Skagafjarðar. Gylfi fór m.a. yfir sýn ASÍ á stöðu kjarasamningamála og möguleika verkalýðshreyfingarinnar í komandi kjarabaráttu. Ljóst er að ekki verður liðið að verkalýðsfólk beri eitt alla ábyrgð á stöðugleika í efnahagsmálum í samfélaginu á meðan aðrir hópar fá launahækkanir langt umfram það sem félagsmenn innan Alþýðusambandsins fá.

Gylfi fór mörgum orðum yfir nýframkomið fjárlagafrumvarp og þær skattabreytingar sem þar birtast. Hann ræddi hvernig það muni hitta fyrir láglaunafólk í landinu en allar breytingar virðast miða að því að lækka skattbyrði þeirra tekjuhærri en ekki láglaunafólks. Þá kvartaði hann yfir samskiptaleysi við ríkisstjórn og að ekkert samráð sé haft við verkalýðshreyfinguna um málefni er varða kjör atvinnulausra eða úrbætur í húsnæðismálum svo eitthvað sé nefnt.
Fundurinn var góður og málefnalegur og voru málin rædd á óformlegum nótum. Svo virðist sem áhyggjur fólks séu svipaðar innan verkalýðshreyfingarinnar og búast menn við átakavetri þegar kemur að kjarasamningum.

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com