Skip to main content

Við hvetjum félagsmenn og aðra neytendur til að fylgjast með verðlagi á vörum og þjónustu en breytingar á lögum um virðisaukaskatt og almenn vörugjöld hafa áhrif á verðlag á allflestum vörum og þjónustuliðum. Nauðsynlegt er að sýna söluaðilum aðhald til að tryggja að tilætlaðar lækkanir skili sér til neytenda og hækkanir verði ekki umfram það sem tilefni er til.

Við hvetjum félagsmenn og aðra neytendur til að fylgjast með verðlagi á vörum og þjónustu en breytingar á lögum um virðisaukaskatt og almenn vörugjöld sem tóku gildi í upphafi árs hafa áhrif á verðlag á allflestum vörum og þjónustuliðum. Nauðsynlegt er að sýna söluaðilum aðhald til að tryggja að tilætlaðar lækkanir skili sér eins og vera ber til neytenda og hækkanir verði ekki umfram það sem tilefni er til.

Á síðunni www.vertuaverdi.is er hægt að skoða allskyns ábendingar um verðlag sem neytendur hafa komið með og gott er að vita af. Þar má einnig með auðveldum hætti koma á framfæri upplýsingum um verðbreytingar sem neytendur verða áskynja.

Nánari upplýsingar um breytingar á virðisaukaskatti og vörugjöldum má finna á heimasíðu ASÍ og sjá hér.

Á heimasíðu ASÍ má einnig finna reiknivél þar sem áætla má tilætluð áhrif breytinganna – sjá nánar hér.

Hjálpumst að og verum á verði !

 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com