Skip to main content
AldanVMF

Gríðarlegur verðmunur á hreinlætisvörum

By February 13, 2018No Comments

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á matvöru og öðrum nauðsynjavörum en könnunin sýnir að gríðarlegur verðmunur er á hreinlætisvörum á milli verslana eða frá 69% upp í 132%. Mestur er verðmunurinn á dömubindum eða 132% og eins er mikill verðmunur á uppþvottavélatöflum eða 131%.

Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á matvöru og öðrum nauðsynjavörum en könnunin sýnir að gríðarlegur verðmunur er á hreinlætisvörum á milli verslana eða frá 69% upp í 132%. Mestur er verðmunurinn á dömubindum eða 132% og eins er mikill verðmunur á uppþvottavélatöflum eða 131%. Iceland var oftast með hæsta verðið í könnuninni eða í 35 af 82 tilvikum (43% tilfella) á meðan Bónus var oftast með það lægsta eða í 41 af 82 tilvikum (50% tilfella). Könnunin var framkvæmd í 9 stærstu og dreifðustu verslunum og verslunarkeðjum landsins þann 7. febrúar. Meðalverðmunurinn á öllum vörunum í könnuninni var 52% en mikill verðmunur var á vinsælum vörum eins og ferskum kjúklingi, fiski, Smjörva, Cheeriosi, skyri, hveiti og allskonar grænmeti og ávöxtum.

Verðsamanburður í töflu.

Munur á hreinlætisvörum 66-132%
Mesti verðmunurinn var á hreinlætisvörum eða allt frá 66% og upp í 132%. Meðalverðmunurinn á hreinlætisvörum var 96% en þar bar hæst að 132% verðmunur er á dömubindum milli verslana. Verðmunurinn á OB túrtöppum er 92% milli verslana. Costco er með ódýrustu Always Ultra normal dömubindin en þar er stykkjaverðið á 12 kr. á meðan stykkið er á 28 kr. í Víði. Þetta sýnir að heimsókn frá Rósu frænku getur kostað kvenþjóðina skildinginn sinn ef ekki er að gáð. Þá var mikill munur á Finish Powerball uppþvottavélatöflum eða 131% en taflan var ódýrust í Hagkaupum á 13 kr. en dýrust á 31 kr. í Víði. Þá getur klósettferðin verið afar mis dýr hjá landanum en 88% verðmunur var á Fis klósettpappír frá Papco milli verslana, ódýrust var rúllan í Bónus á 35 kr. stykkið en dýrust í Víði á 65 kr. Verðmunur á þvottaefni og þvottalegi var einnig mikill eða 69% og 66%. Báðar vörurnar voru ódýrastar í Bónus en dýrastar í Iceland.

52% meðalverðmunur á milli verslana – Iceland dýrast, Bónus ódýrast
Í könnuninni var verð á 82 algengum vörum skoðað en 52% meðalverðmunur var á vörunum á milli verslana. Þannig var verðmunur á mjólkurvörum allt frá 10% og upp í 58%, verðmunurinn á kjötvörum og áleggi var frá 10% og upp í 84% og verðmunur á brauðmeti og morgunkorni frá um 30% og upp í 135%. Bónus var oftast með lægsta verðið í könnuninni eða í 41 tilvikum en þar á eftir koma verslanirnar Fjarðarkaup og Víðir, báðar með lægsta verðið í 13 tilvikum og í fjórða sæti var Krónan með lægsta verðið í 11 tilvikum. Iceland var oftast með hæsta verðið eða í 35 tilvikum af 82 á meðan Hagkaup var með hæsta verðið í 22 tilvikum og Víðir í 13 tilvikum.

42% meðalverðmunur á kjöti og fiski – 84% verðmunur á ferskum kjúklingi
Kjöt og fiskur eru með dýrustu vörum sem fólk setur í innkaupakörfuna hjá sér og því vekur mikill verðmunur í þeim vöruflokki nokkra athygli. Sem dæmi má nefna að 84% verðmunur var á heilum ferskum kjúklingi milli búða og 68% á frosnum ýsuflökum. Ódýrastur var kjúklingurinn hjá Costco (649 kr. kg) en dýrastur hjá Kjörbúðinni(1197 kr. kg) á meðan frosin ýsuflök voru ódýrust í Krónunni á 1299 kr. kg en dýrust í Kjörbúðinni á 2183 kr. kg. Þá var 75% verðmunur á dýrasta og ódýrasta frosna þorskinum, ódýrastur var hann á 1918 kr. kg í Bónus en dýrastur á 1477 kr. kg í Fjarðarkaupum.

Töluverður munur var á brauðmeti og morgunkorni en þrátt fyrir að vera ekki dýrustu vörurnar eru þetta oft mikið keyptar vörur á heimilum landsmanna. Í þessum vöruflokki var meðalverðmunurinn 61% en mesti verðmunurinn var á Cheeriosi milli búða eða 135%, lægst var kílóverðið í Krónunni eða 615 kr. en hæst í Iceland eða 1446 kr. Þá var 54% verðmunur á Lífskorn brauði með tröllahöfrum og Chia fræjum á milli búða en þar var Bónus með lægsta verðið 369 kr. en Víðir með það hæsta eða 568 kr. Verðið á Kellogs kornfleksi var einnig æði misjafnt en hæsta kílóverðið mátti finna í Víði á 773 kr. en það lægsta í Costco á 450 kr. Sömu sögu var að segja um haframjölið frá Solgryn en þar var verðmunurinn 65%, dýrast var það í Víði á 526 kr. kílóið en ódýrast í Bónus á 320 kr.

Mikill verðmunur á ávöxtum og grænmeti
Mikill verðmunur var á ávöxtum og grænmeti eða frá 66% upp í 137%. Mesti munurinn var á Acocado en kílóið af því kostaði 1249 kr. í Costco en 528 kr. í Fjarðarkaupum. Þá var 125% verðmunur á Mangó milli verslana, dýrast var það hjá Víði á 785 kr. kílóið á meðan kílóið var á 349 í Iceland. Verðmunurinn á banönum milli búða var 123% en ódýrastir eru þeir í Bónus á 179 kr. kg en á 399 kr. kg í Hagkaup.

Vöruúrval og verðmerkingar
Costco var með minnsta vöruúrvalið af öllum búðunum en þar voru einungis 13 vörur til af þeim 82 sem voru kannaðar. Næstminnsta vöruúrvalið mátti finna í Víði en þar vantaði 19 vörur af þeim 82 vörum sem voru kannaðar. Í Víði var verðmerkingum einnig mest ábótavant en í 14 tilfellum voru verðmerkingar ekki til staðar. Í Kjörbúðina vantaði 18 vörur af vörulistanum sem var kannaður. 

Um könnunina
Í könnuninni var hilluverð á 82 vörum skráð niður en það er það verð sem neytandinn hefur þegar hann ákveður hvort hann ætli að kaupa viðkomandi vöru. Ef að afsláttur er tekinn fram á hillu er hann tekinn til greina.

Könnunin var framkvæmd á sama tíma í öllum verslunum en þær eru Bónus við Hallveigarstíg, Nettó í Mjódd, Krónan niðri á Granda, Hagkaup í Skeifunni, Iceland í Engihjalla, Fjarðarkaup, Víðir Sólvallagötu, Costco og Kjörbúðin Garði.  Í könnuninni er einungis gerður samanburður á verði en ekkert mat er lagt á gæði eða þjónustu viðkomandi verslana.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum 

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com