Skip to main content
AldanVMF

Hefur afnám sykurskatts skilað sér til neytenda?

By November 23, 2015No Comments

Vörugjöld af sykri, svonefndur sykurskattur, voru afnumin um síðustu áramót. Á sama tíma var virðisaukaskattur á matvöru hækkaður úr 7% í 11%. Áhrif breytinganna voru misjöfn eftir vörum, allt eftir því hve mikinn sykur/sætuefni viðkomandi vara innihélt og hvert verð hennar var í upphafi.

Dæmi um sætar mat- og drykkjarvörur sem báru vörugjald (sykurskatt)

  • Sykur, molasykur, púðursykur o.þ.h. – 210 kr./kg.
  • Gosdrykkir – 21 kr./l.
  • Ís – 32 kr./l.
  • Sultur, grautar, ávaxtamauk – 210 kr./kg. af viðbættum sykri
  • Kex og sætabrauð – 210 kr./kg. af viðbættum sykri
  • Súkkulaði og sælgæti – 210 kr./kg. af viðbættum sykri
  • Sætar mjólkurvörur – 210 kr./kg. af viðbættum sykri
  • Sætt morgunkorn – 210 kr./kg. af viðbættum sykri

Verðlagseftirlitið áætlaði að vöruflokkurinn sykur, súkkulaði, sælgæti o.fl. myndi lækka u.þ.b. um 10% að meðaltali, en í honum eru allar ofantaldar vörur nema sætar mjólkurvörur og morgunkorn.

Samkvæmt vísitölu neysluverðs lækkaði vöruflokkurinn hins vegar aðeins um 4,6% á tímabilinu ágúst 2014 til október 2015. Þetta er mun minni lækkun en verðlagseftirlitið áætlaði.

Á heimasíðu ASÍ má lesa nánari umfjöllun um afnám sykurskattsins og hvernig hún hefur skilað sér til neytenda.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com