Skip to main content
Aldan

Hótelþernur krefjast góðra starfsskilyrða og vinnuumhverfis

By November 6, 2015No Comments

Að ræsta á hótelum fylgir mikil streita og líkamlegt erfiði og þess utan eru margir í ótryggu ráðningarsambandi. Þann 4.-11. nóvember 2015 standa samtök starfsfólks á hótelum, kaffihúsum, skyndibitastöðum, veitingahúsum og í ferðaþjónustu á Norðurlöndum fyrir átaki þar sem sjónum er beint að aðstöðu hótelþerna.

Kastljósinu er beint að vinnuálagi sem hefur aukist mjög hin síðari ár. Margar hótelþernur ná ekki einu sinni að taka kaffitíma. Hið mikla álag hefur líkamlegar afleiðingar og skapar mikla streitu.

Markmið átaksins er að vekja athygli á baráttu herbergisþerna fyrir réttlæti, virðingu og bættum starfsskilyrðum. Ósýnileika þeirra og erfiðum starfsskilyrðum er mótmælt og hinn alþjóðlegi hóteliðnaður er hvattur til að viðurkenna vinnuframlag þeirra og réttindi.

Samtök starfsfólks á hótelum, kaffihúsum, skyndibitastöðum, veitingahúsum og í ferðaþjónustu á Norðurlöndum mun kynna aðgerðir í vikunni sem átakið stendur yfir. Hótelþernur á Norðulöndum krefjast góðra starfsskilyrða og vinnuumhverfis.

Vikuna sem átakið stendur yfir standa verkalýðsfélög á Norðurlöndum fyrir vinnustaðaheimsóknum, rafrænni upplýsingamiðlun og vitundarvakningu meðal almennings um starfsskilyrði hótelþerna.

#‎fairhousekeeping ‪#‎makemyworkplacesafe

Kynningarbæklingur um átakið (PDF).

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com