Skip to main content
AldanVMF

Hvað kosta sumarnámskeið fyrir börn og unglinga 2016 ?

By June 8, 2016No Comments

Yfir sumartímann senda margir foreldrar börn sín á hin ýmsu námskeið þar sem skólar eru lokaðir og foreldrar eiga sjaldnast jafn marga frídaga og börnin. Verðlagseftirlit ASÍ hefur tekið saman dæmi um sumarnámskeið sem í boði eru fyrir börn og unglinga. Námskeiðin eru af ýmsum toga og er verðmunur á milli þeirra mikill.

Yfir sumartímann senda margir foreldrar börn sín á hin ýmsu námskeið þar sem skólar eru lokaðir og foreldrar eiga sjaldnast jafn marga frídaga og börnin. Verðlagseftirlit ASÍ hefur tekið saman dæmi um sumarnámskeið sem í boði eru fyrir börn og unglinga. Námskeiðin eru af ýmsum toga og er verðmunur á milli þeirra mikill. Sem dæmi má nefna að námskeið hjá Dale Carnagie kostar 84.000 kr. á meðan tómstundanámskeið hálfan daginn hjá Íþrótta- og tómstundaráði Hafnarfjarðar kostar 4.300 kr.

Það er umtalsverður kostnaður að senda börn og unglinga á námskeið á sumrin, þrátt fyrir að ódýrasti kosturinn sé valinn. Gera má ráð fyrir að hálfsdags námskeið í viku kosti um 12.000 kr. og heildags viku námskeið um 16.000 kr.

Sem dæmi þarf fjölskylda á höfuðborgarsvæðinu með 10 ára gamalt barn sem fer í tvær vikur á námskeið allan daginn og í 2 vikur hálfan daginn að greiða 60.500 kr. miðað við valið hér að neðan, og er það fyrir utan greiðslu fyrir gæslu, hressingu og hádegismat.

 

Fjölskylda á höfuðborgarsvæðinu með 8 ára barn sem fer á eitt 5 daga námskeið allan daginn, annað heilsdagsnámskeið sem endar með útilegu og í tvær vikur hálfan daginn þarf að greiða 64.370 kr. miðað við valið hér að neðan, en það er fyrir utan greiðslu fyrir gæslu, hressingu og hádegismat.

Þessi kostnaður getur svo margfaldast ef mörg börn eru í fjölskyldunni og ef börnin/barnið er í lengri tíma yfir sumarið í skipulagðri dagskrá. Hér getur því verið um talsverðar upphæðir að ræða sem reynst geta mörgum fjölskyldum þungar í skauti.   

Yfirlit yfir sumarnámskeið fyrir börn og unglinga 2016

Skoðuð voru verð á námskeiðum íþróttafélaga, á vegum íþrótta- og tómstundarráða, sveitarfélaga, skátafélaga og frjálsra félagasamtaka. Námskeiðunum í könnuninni er skipt eftir fjölda námskeiðsdaga og klukkustunda á dag. Víða er boðin gæsla á morgnana áður en námskeiðin hefjast, í hádeginu og eftir að dagskrá námskeiðanna lýkur á daginn. Misjafnt er hvort greiða þurfi aukalega fyrir þessa gæslu eða hvort hún er innifalin í námskeiðsgjaldinu, sama er að segja um hádegisverð og hressingu, matur er sjaldnast innifalinn í námskeiðsgjaldinu, en oft er hægt að kaupa heitan mat gegn vægu gjaldi. Það gjald sem gefið er upp í könnuninni er ávallt miðað við eitt stakt námskeið þannig að ekki er tekið tillit til afsláttarverðs t.d. iðkendaafsláttar eða systkinaafsláttar. Við samanburð á verði námskeiða er því nauðsynlegt að hafa þetta í huga.

Auk þess ber að athuga að hér er aðeins um verðsamanburð að ræða og sú þjónusta eða dagskrá sem í boði er á námskeiðunum er ekki metin. Úrvalið af sumarnámskeiðum fyrir börn og unglinga er mjög mikið og þessi könnun nær aðeins yfir hluta þeirra.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com