Skip to main content
AldanVMF

Hvað kostar að æfa fimleika haustið 2015 ?

By October 20, 2015No Comments

Verðlagseftirlit ASÍ tók saman hvað það kostar að æfa fimleika fyrir 8-10 ára börn haustið 2015 í u.þ.b 4. klst. á viku. Mikill verðmunur er á hæsta og lægsta verðinu eða 134%. Dýrast er að æfa hjá Íþróttafélaginu Gerplu en það kostar 58.197 kr. en ódýrast hjá Íþróttafélaginu Hamri 24.889 kr. sem er 33.308 kr. verðmunur eða 134%.

Töluverðar hækkanir frá því í fyrra
Gjaldskrá félaganna hefur aðeins staðið í stað hjá tveimur félögum af 15, en þau félög eru Gerpla og Hamar. Restin af félögunum hafa hækkað gjaldskrána um 4-19%. Mesta hækkunin er hjá Aftureldingu, úr 38.000 kr. í 45.375 kr. eða um 19%, Stjarnan og Ármann hafa hækkað um 15%, Fimleikafélag Akraness og Fylkir um 10%, Fimleikafélag Akureyrar og Íþróttafélagið Höttur um 9% og Fimleikafélagið Björk og Ungmennafélagið Selfoss um 8%.  Grótta, Fjölnir, Keflavík og Fimleikafélagið Rán hækka um 4-5%.

Verðlagseftirlitið bar saman gjaldskrá fyrir 8-10 ára börn sem æfa u.þ.b. 4. klst. á viku, en tekinn er saman æfingakostnaður fram að jólum (4. mánuðir). Ekki er tekið tillit til þess hvaða fimleika er verið að æfa (t.d. almenna, hóp- eða áhalda). Öll félögin eiga það sameiginlegt að setja saman gjaldskrá eftir aldri og fjölda klukkustunda sem æft er í viku hverri.

Auk þess ber að athuga að hér er aðeins um verðsamanburð að ræða og sú þjónusta eða dagskrá sem í boði er á námskeiðum félaganna er ekki metin.  Verðlagseftirlitið tekur heldur ekki tillit til fjáraflanna sem íþróttafélögin standa fyrir og eða styrkja frá sveitarfélögunum. Hvorki æfingagallar né keppnisgjöld eru með í gjaldinu sem borið er saman.

Sjá nánar töflu yfir æfingagjöld á heimasíðu ASÍ

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com