Skip to main content
Aldan

Kaldar kveðjur frá ríkinu til launafólks

By January 9, 2014No Comments

Blekið er ekki þornað á nýgerðum kjarasamningum þegar stjórnvöld senda kaldar kveðjur til launafólks í formi gjaldskrárhækkana.

Blekið er ekki þornað á nýgerðum kjarasamningum þegar stjórnvöld senda kaldar kveðjur til launafólks í formi gjaldskrárhækkana. Komugjöld á heilsugæslustöðvar hækkuðu um 15-20% þann 1. janúar síðastliðinn.
Rétt fyrir jól var undirritaður kjarasamningur með hógværum launahækkunum en með þeim samningi fylgdi ásetningur um að halda aftur af hækkunum hjá fyrirtækjum og í opinberum gjaldskrám.

Stærstu sveitarfélög landsins hafa dregið til baka fyrirhugaðar hækkanir og í tengslum við kjarasamninga undirritaði fjármálaráðherra bréf með „skuldbindandi fyrirheitum“ um svipað. Reyndar segir orðrétt í bréfinu sem fjármálaráðherra undirritaði þann 21. desember síðastliðinn: „Næstu tvö ár verði gjaldskrárhækkanir ríkisins undir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.“
Verðbólgumarkmið Seðlabankans er 2,5% á tólf mánuðum en rúmri viku eftir undirritum yfirlýsingarinnar hækka komugjöld á heilsugæslustöðvar um 15-20%.

Framkvæmdastjórn Starfsgreinasambands Íslands krefst þess að þessi hækkun verði afturkölluð og staðið verði við gefin loforð í aðdraganda kjarasamninga.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com