Skip to main content
Aldan

Kjaradeilur í algjörum hnút – ábyrgðin liggur hjá Samtökum atvinnulífsins

By May 21, 2015No Comments

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands gagnrýnir harðlega þá afstöðu Samtaka atvinnulífsins að neita að ræða kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar í þeirri erfiðu kjaradeilu sem nú er uppi. Afneitun af þessu tagi ber vott um takmörkuð veruleikatengsl og herðir aðeins hnútinn sem þarf að leysa.

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands gagnrýnir harðlega þá afstöðu Samtaka atvinnulífsins að neita að ræða
kröfugerð verkalýðshreyfingarinnar í þeirri erfiðu kjaradeilu sem nú er uppi. Afneitun af þessu tagi ber vott um takmörkuð veruleikatengsl og herðir aðeins hnútinn sem þarf að leysa.

Afstaða atvinnurekenda er ögrandi og skaðar það traust sem þarf að ríkja á milli aðila sem verða að ná samningum. Verkefnið fer ekkert, það verður bara erfiðara viðfangs. Miðstjórn ASÍ vísar því ábyrgð á stöðu mála í kjaradeilunum alfarið á hendur SA. Komi til víðtækra verkfalla á almennum vinnumarkaði síðar í mánuðinum er það á ábyrgð samtaka atvinnurekenda.

Close Menu

About Salient

The Castle
Unit 345
2500 Castle Dr
Manhattan, NY

T: +216 (0)40 3629 4753
E: hello@themenectar.com