Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um sáttatillögu ríkissáttasemjara en kjörfundur hófst kl. 8 í morgun. Aldan hvetur alla félagsmenn sem vinna á almenna markaðinum til að koma á skrifstofu félagsins, greiða atkvæði og sýna þannig í verki skoðun sína á nýjum kjarasamningi
Nú stendur yfir atkvæðagreiðsla um sáttatillögu ríkissáttasemjara en kjörfundur hófst kl. 8 í morgun. Aldan hvetur alla félagsmenn sem vinna á almenna markaðinum til að koma á skrifstofu félagsins, greiða atkvæði og sýna þannig í verki skoðun sína á nýjum kjarasamningi sem gildir í 12 mánuði, frá 1. febrúar 2014.
Kjörfundur stendur yfir dagana 4., 5. og 6.mars og er opinn frá kl. 8:00-20:00 alla dagana.
Helstu atriði nýja samningsins eru:
◾ Eingreiðsla vegna janúar 2014,
kr. 14.600
◾ Þeir sem taka mið af launatöflu
hækka á bilinu um 9.565 krónur
til kr.10.339
◾ Þeir sem taka laun á bilinu
230.000 kr. – 285.000 kr.
hækka um 8.000 krónur
◾ Laun yfir 285.000 kr. hækka um
2,8 %
◾ Allir kjaratengdir liðir hækka um
2,8 %
◾ Desemberuppbót 2014 hækkar í kr. 73.600
◾ Orlofsuppbót 2014 hækkar í kr. 39.500
◾ Dagvinnutekjutrygging skv. samningi fyrir árið 2014
verður kr. 214.000